~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ Eplica web management system Eplica 3 : (4 @ 1040f32) Tags [release/4.7.1] License Eplica ISP hosted solution eplica-is-1.hugsmidjan.is:: ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ Hugsmiðjan ehf. Tel. +354 550-0900 www.eplica.is ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Í náttúrunni er að finna nytsöm efnasambönd með ýmis konar virkni, sem hægt er að nýta við þróun lyfja, en yfir þriðjungur allra lyfja á markaði í dag er kominn frá náttúruefnum. Sjávarlífverur framleiða efni sem eru frábrugðin sambærilegum efnum landlífvera og gætu því verið góð uppspretta nýrra lyfjasprota en rannsóknir á lífvirkni náttúruefna úr hafinu eru mjög skammt á veg komnar
Lesa nánarMeð aukinni eftirspurn á frystu sjávarfangi, bæði til notkunar hér á landi og til útflutnings er þörf á bættum þíðingarferlum. Með bættum þíðingarferlum aukast gæði og nýting afurða til áframhaldandi vinnslu hérlendis og erlendis, til veitingahúsa jafnt sem stórmarkaða.
Lesa nánarFeel Iceland mun hefja sölu á fæðubótaefnum unnum úr aukaafurðum fisks á Amazon í nóvember 2018.
Lesa nánarMeginmarkmið voru eftirfarandi:
I. Að prófa aðferðir til að undirbúa sýni úr safni Keldna og úr AVS-smáverkefni 2013- 2014 fyrir raðgreiningar á ómeinvirku afbrigði ISAV veirunnar (ISAV-HPR0).
II. Að kanna hvort PRV, PMCV og ISAV, væru til staðar hérlendis í völdum hópum laxa og að raðgreina jákvæðan efnivið, væri hann til staðar
Lesa nánarLaxalús herjar víða á laxeldi og veldur gífurlegum afföllum og verðmætatapi. Samvist laxfiska og hrognkelsa er nýstárleg aðferð til að aflúsa lax á vistvænan hátt og hefur skilað miklum árangri. Villtur fiskur getur borið ýmiss konar smit, eins og komið hefur fram nýlega þar sem veirusýking greindist í villtum hrognkelsaklakfiski á Íslandi árið 2015. Mikilvægt er því að vita hvort sýkingar sem eiga uppruna sinn í hrognkelsum geti borist í laxa, og öfugt.
Lesa nánar