~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ Eplica web management system Eplica 3 : (4 @ 211fa08) Tags [release/4.7] License Eplica ISP hosted solution eplica-is-1.hugsmidjan.is:: ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ Hugsmiðjan ehf. Tel. +354 550-0900 www.eplica.is ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Ársskýrsla sjóðsins fyrir árið 2016 er kominn út. Hún ef með líku sniði og undanfarin ár. Gerð er grein fyrir úthlutunum ársins, helstu atburðum í sögu sjóðsins á árinu og örlítið um skýrsluur vegna eldri verkefna sem bárust sjóðnum á árinu.
Lesa nánarUm er að ræða verkefni sem laut að því að markaðssetja IceProtein® afurðina á Íslandi með því að þróa fæðubótarefna
vörulínu sem innihéldi IceProtein® afurðina. IceProtein® afurðin er vatnsrofið þorskprótín sem er þróað af rannsókna- og þróunarfyrirtækinu Iceprotein á Sauðárkróki úr afskurði sem fellur til við flakavinnslu á þorski
Lesa nánarMarkmiðið með verkefninu var að markaðssetja PreCold á Íslandi vorið 2015 og kanna möguleika á skráningu vörunnar í Bandaríkjunum, auk markaðsgreiningar fyrir Bandaríkin og Evrópu. PreCold er munnúði gegn kvefi sem unnin er úr aukaafurðum frá þorski og eykur varan þannig virði þorskafurða.
Lesa nánarÞað er vel þekkt að fiskur stífnar við upphaf dauðastirðnunar og er oftar en ekki meðhöndlaður í slíku ástandi, færður á milli kara eftir löndun ásamt því að vera slægður og umísaður. Við mikinn og kröftugan samdrátt í dauðastirðnun getur myndast los í flökum sem skerðir gæði hráefnisins. Mikilvægt er að aðlaga vinnslu að dauðastirðnun og stýra ferlinu til að koma í veg fyrir gæðatap, t.d. los og lakari áferð (e. texture).
Lesa nánar