Íslensk bleikja á Evrópumarkað, markaðsátak 2008-2010
Verkefnisstjóri: Hanna Sigrún Helgadóttir hjá Oddeyri ehf
Verkefni til 3 ára
Upphæð styrks 2008: 7.000.000 kr
Upphæð styrks 2009: 7.000.000 kr
Upphafsár: 2008
Áætlað lokaár: 2011
Unnið af: Oddeyri ehf, Samherji ehf
Markmið verkefnisins: Markmið verkefnissins er að efla og styrkja stöðu íslenskrar bleikju, undir heitunum ,,Island Saibling” (Þýskaland), ,,Iceland Arctic Charr” (Bretland), ,,Omble chevalier d’Islande” (Frakkland) og vörumerkinu ,,Icefresh Farming”, á markaði sjávarafurða á meginlandi Evrópu og á Bretlandseyjum í takt við stóraukna framleiðslu hér á landi. Markmiðið er einnig að stuðla áfram að háu afurðaverði á bleikju og koma í veg fyrir verðfall vegna aukins framboðs bleikjuafurða. Markmið í seldu magni er að auka sölu á ferskum og frosnum bleikjuflökum á Evrópumarkaði um 20% milli ára árin 2008 – 2010..
Tilvísunarnúmer AVS: R 017-08

