-
BleikjumatreidslaEinar Geirsson sýnir núverandi og verðandi matreiðslumönnum í CIA hvernig hægt er að matreiða sex mismunandi rétti úr einu bleikjuflaki.
Íslensk bleikja á Bandaríkjamarkað, markaðsátak 2007-2009
Verkefnisstjóri: Hanna Sigrún Helgadóttir
Verkefni til 3 ára
Upphæð styrks 2007: 6.000.000 kr
Upphæð styrks 2008: 4.300.000 kr
Upphæð styrks 2009: 5.300.000 kr
Upphafsár: 2007
Áætlað lokaár: 2010
Unnið af: Oddeyri ehf, Samherji hf og Aquanor Marketing
Markmið verkefnisins:
Markmið verkefnissins er að efla og styrkja stöðu ferskrar íslenskrar bleikju, undir heitinu ,,Iceland Arctic Charr” og vörumerkinu ,,Icefresh Farming”, á veitingahúsa- og stórmarkaðakeðjum í Bandaríkjunum í takt við stóraukna framleiðslu hér á landi.
Markmiðið er einnig að stuðla áfram að háu afurðaverði á bleikju og koma í veg fyrir verðfall vegna aukins framboðs bleikjuafurða. Markmið í seldu magni er að auka sölu á ferskum bleikjuafurðum á Bandaríkjamarkaði um 200% milli ára árið 2007 og 30% árin 2008 og 2009.
Tilvísunarnúmer AVS: R 020-07
Frétt birtist um verkefnið 26. mars 2009

