-
Eldisþorskur kallar eftir fóðri(Ljósm.: Valdimar I. Gunnarss.)
Kynbætur á þorski og seiðaeldi.
Verkefnisstjóri: Theódór Kristjánsson
Verkefni til 3 ára
Upphæð styrks 2006: 25.000.000 kr
Upphæð styrks 2007: 25.000.000 kr
Upphæð styrks 2008: 26.000.000 kr
Upphæð styrks 2009: 25.800.000 kr
Upphafsár: 2006
Áætlað lokaár: 2010
Unnið af: Stofnfiski hf, Hafrannsóknastofnun, Icecod ehf, Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf og Tilraunastöð HÍ í meinafræðum að Keldum
Markmið verkefnisins:
Markmið verkefnisins er að hefja kynbætur á þorski og auka gæði þorskseiða. Lögð verður áhersla á skipulag kynbóta í þorskeldi. Með hermilíkani verða skoðaðar ýmsar útfærslur að kynbótakerfum fyrir þorskeldi til að hámarka kynbótaframför með sem minnstum tilkostnaði.
Á fyrstu kynslóð kynbættra þorskseiða er stefnt að 16 % kynbótaframför í vexti eða 2 mánaða styttingu eldistíma. Stefnt er að kreistingu á náttúrulegum tíma (á vorin) og utan hefðbundins klaktíma (að hausti). Sérstök áhersla verður lögð á heilbrigði klakþorsks.
Tilvísunarnúmer AVS: R 069-06

