Skipulag
Skipulag
Þann 1. október, 2004 var Dr. Jóhann Örlygsson, dósent við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri ráðinn sem verkefnisstjóri fyrir líftækninet sem er samstarf á milli iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, sjávarútvegsráðuneytis og Háskólans á Akureyri.
Jóhann hefur starfsaðstöðu í nýja rannsóknahúsi Háskólans á Akureyri, Borgum. Hlutverk verkefnisstjóra er að tengja saman aðila sem starfa í líftækni í n.k. netsamstarf þar sem aðilar geta haft starfsvettvang á ólíkum stöðum. Styrkleiki samstarfsins byggir á samlegð mismunandi sérfræðiþekkingar, samnýtingu búnaðar og aðstöðu og meiri líkum á árangri með stærri rannsókna- og þróunarverkefnum. Iðnaðarráðuneytið hefur skipað eftirtalda aðila í stjórn líftækninetsins.
Sveinn Þorgrímsson (Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti) - formaður
Eiríkur Baldursson (Menntamálaráðuneyti)
Friðrik Friðriksson (Sjávarútvegsráðuneyti)
Þorsteinn Gunnarsson (Háskólanum á Akureyri)

