Samstarfssamningur
Samstarfssamningur
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, menntamálaráðuneyti, sjávarútvegsráðuneyti og Háskólinn á Akureyri, hér eftir nefndir samstafsaðilar, gera með sér eftirfarandi samning um "samstarf um líftækni".
Markmið samstarfsins er að efla rannsóknir og tækniþróun á sviði líftækni í þágu íslensks atvinnulífs.
Samstarfssamningur um líftækni er þróunarverkefni sem byggir á þeim meginhugmyndum sem settar eru fram í skýrslunni "Líftækninet í auðlindanýtingu". Verkefnið hófst 1 október 2004 og stendur til ársloka 2007. Hlutverk verkefnisins er að koma á virku samstarfi á milli þeirra sem vinna við líftæki í þágu íslensks atvinnulífs. Í því felst m.a. að skilgreina ný rannsóknaverkefni; tengja saman þá sem stunda rannsóknir og þróunarstörf; vinna umsóknir; annast gerð samninga; og verkefnastjórn.
Verkefnið er í grundvallaratriðum s.k. netsamstarf, sem felur í sér samstarf aðila sem geta haft starfsvettvang á ólíkum stöðum. Styrkleiki samstarfsins byggir á samlegð mismunandi sérfræðiþekkingar, samnýtingu búnaðar og aðstöðu og meiri líkum á árangri með stærri rannsókna- og þróunarverkefni. Einn verkefnisstjóri með þekkingu á nýsköpun og atvinnuþróun stýrir netsamstarfinu. Starfsstöð hans er við Háskólann á Akureyri.
Samstarfsaðilar tilnefna einn fulltrúa hver í verkefnastjórn um líftækni. Hlutverk hennar er fyrst og fremst stefnumótun sem fylgi almennum áherslum í stefnu vísinda og tækniráðs auk þess að vera verkefnastjóranum til aðstoðar við mótun faglegra áherslna í starfinu. Verkefnastjórnin skal stefna að því að eftir að þróunarsamningi þessum lýkur verði áfram til netsamstarf á milli fyrirtækja, háskóla og stofnana um rannsóknir og tækniþróun á sviði líftækni.
Lagt verður óháð faglegt mat á verkefnið í lok samningstímans. Á grundvelli þess munu hlutaðeigandi aðilar fjalla um það hvort framhald verði á verkefnisinu og, ef svo á að vera, hvernig verði að því staðið.
Fagráð um líftækni, sem starfar á vegum AVS-sjóðs sjávarútvegsráðherra, annast mat umsókna um styrki sem falla undir samstarfssamning þennan. Fagráðið sendir iðnaðarráðuneyti tillögur um úthlutanir. Verkefnisstjórn hefur umsagnarrétt um tillögurnar. Ekki er beint samband á milli fagráðsins og verkefnisstjórans, enda hlutverk þeirra alfarið aðskilið.
Framlag samstarfsaðilanna er þannig:
- Iðnaðar og viðskiptaráðuneyti leggur fram 20 milljónir króna. í verkefnafé árin 2004 og 2005 og 10 milljónir króna í verkefnafé árin 2006 og 2007.
- Menntamálaráðuneyti og Háskólinn á Akureyri leggja til húsnæði og búnað fyrir verkefnastjórann.
- Sjávarútvegsráðuneyti leggur til starfskrafta fagráðs AVS um líftækni vegna faglegs mats umsókna og almennrar ráðgjafar.

