AVS flytur í Verið
AVS sjóðurinn hefur flutt í Verið á Sauðárkróki
Starfstöð AVS rannsóknasjóðs í sjávarútvegi hefur verið flutt í Verið, Háeyri 1 á Sauðárkróki.
AVS rannsóknasjoður í sjávarútvegi hefur flutt í Verið, Háeyri 1, 550 Sauðárkróki. Eins og kunnugt er var sjóðurinn fluttur til Sauðákróks fyrir tæpu ári síðan. Þá var verið að byggja við Verið - vísindagarð og var frá upphafi hugað að því að flytja þangað þegar það húsnæði yrði tilbúið. Sjóðurinn flutti síðan starfsemi sína á jarðhæð nýbyggingarinnar þann 20. desember. Starfsmaður er sem fyrr Pétur Bjarnason og starfsemi sjóðsins verður með óbreyttu sniði.

