Fréttir
Lúðulifra
Lúðulirfa

Bætt frjóvgun hrogna

26.8.2010

Helsti flöskuháls í eldi sjávarfiska eru fyrstu þroskastigin og framboð á gæðahrognum, lirfum og seiðum. Hrognagæði fiska eru mjög breytileg og hafa helst verið metin af frjóvgunarhlutfalli og afkomu hrogna og lirfa en gæði ráðast hinsvegar af ýmsum ólíkum þáttum.

Fyrir stjórnun og afkomu fyrirtækja er mjög mikilvægt að geta lagt mat á hrognagæði sem fyrst en markmið þessa AVS verkefnis var að skilgreina þætti sem nota mætti til ákvörðunar á gæðum hrogna strax við frjóvgun og sem e.t.v. mætti stjórna. Jafnframt voru gerðar tilraunir með mismunandi aðferðir við frjóvgun í breytilegu hlutfallslegu magni af sjó og þar sem efnum var bætt út í umhverfið við frjóvgun.

Niðurstöður verkefnisins þykja vera mjög áhugaverðar þar sem ekki hefur áður verið framkvæmd jafn viðamikil rannsókn á tengslum bakteríuflóru og svo margra þátta samtímis við gæðamat lúðuhrogna. Ekki reyndist mikill breytileiki í þeim þáttum sem skoðaðir voru og bendir það til þess að þeir mæliþættir sem skoðaðir voru hafi ekki afgerandi áhrif á gæði hrogna einir sér.

Niðurstöður verkefnisins styðja því fyrri niðurstöður um að gæði hrogna séu tengd samsetningu nauðsynlegra fitusýra auk þess sem vísbendingar eru um að samsetning heildarflóru baktería geti haft áhrif á hrognagæði en það opnar fyrir möguleika á mótvægisaðgerðum sem stuðlað gætu að auknum hrognagæðum.

Niðurstöður frjóvgunartilrauna gáfu vísbendingar um að nýjar aðferðir við frjóvgun hrogna geti aukið hlutfall frjóvgunar um a.m.k. 10% en ætla má að aukning í frjóvgunarhlutfalli hrogna leiði til að minnsta kosti sömu aukningar í lifun hrogna (jafnvel meiri) og gefi því möguleika á mikilli tekjuaukningu á ári hverju fyrir fiskeldisfyrirtæki í landinu (Fiskey hf.). Niðurstöður gefa einnig tilefni til frekari rannsókna á áhrifum breyttra frjóvgunaraðferða á afkomu og gæði lirfa.

Nánari upplýsingar veitir Jónína Þ. Jóhannsdóttir hjá Matís.

Tilvísunarnúmer AVS: R 045-09



Senda grein

header16


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica