Fréttir
Nýr glćsilegur bćklingur um međhöndlun á fiski
Ţađ fer ekki milli mála ađ rétt međhöndlun á fiski um borđ í fiskiskipum skiptir öllu máli ef gera á sem mest verđmćti úr aflanum. Blóđgun, slćging, ţvottur og kćling eru lykilhugtökin og er gerđ grein fyrir mikilvćgi ţeirra í ţessum nýja bćklingi.
Stuttu eftir ađ AVS sjóđurinn tók til starfa áriđ 2003 var gefinn út sambćrilegur bćklingur af Rannsóknastofnun fiskiđnađarins. Upplag hans var uppuriđ fyrir nokkru og ţví var brugđiđ á ţađ ráđ ađ ráđast í endurgerđ bćklingsins svo tryggt vćri ađ bestu fáanlegar upplýsingar um rétta međhöndlun vćru ávallt til stađar sem víđast.
Ţađ er nauđsynlegt ađ rifja reglulega upp hvađ ţarf til svo gćđi afla rýrni ekki. Í bćklingnum er vitnađ í gamlan málshátt „ af vondu leđri gjörast ei góđir skór“ ţađ er ekki hćgt ađ framleiđa góđa afurđ úr lélegu hráefni. Ţađ er fátt ömurlegra en ađ fá til vinnslu illa blóđgađan eđa kćldan afla sem er farinn ađ láta verulega á sjá, jafnvel eftir tiltölulega stuttan tíma frá veiđi. Ef fariđ er eftir ţessum leiđbeiningum sem í bćklingnum er ađ finna ţá er öruggt ađ til vinnslu berst fyrsta flokks hráefni.
Bćklingnum verđur dreift víđa um land í samvinnu viđ m.a. Landsamband smábátaeigenda,einnig er hćgt ađ óska eftir eintaki međ ađ senda póst á matis(at)matis.is eđa hringja í 422 5000.
Einnig er hćgt ađ skođa bćklinginn hér: Mikilvćgi góđrar međhöndlunar á fiski.
Tilvísunarnúmer AVS: R 011-09

