Fréttir

Ţorskur í eldiskví
Ţorskur í eldi

Fituţol ţorsks

30.7.2008

Í tilraunum á fóđrun ţorsks í eldi hefur komiđ í ljós ađ hćgt er ađ auka fituhlutfall í fóđri međ stćkkandi fiski. En fitan er ódýrari orkugjafi en próteiniđ svo ţessar niđurstöđur geta leitt til verulegs sparnađar í fóđrun eldisţorks.

Fóđurkostnađur er stćrsti kostnađarţátturinn viđ framleiđslu á eldisţorski og ţví skiptir miklu máli ađ leita allra leiđa til ađ finna hagkvćmt fóđur. AVS sjóđurinn hefur styrkt nokkur fóđurverkefni á undanförnum árum og nú er ađ ljúka verkefni sem kallađ hefur veriđ „Ódýrt fóđur fyrir ţorsk“

Fita er mun hagkvćmari orkugjafi í fóđri heldur en prótein bćđi vegna lćgra verđs og hćrra orkuinnihalds og ţví er mikilvćgt ađ rannsaka ađ hve miklu leyti hćgt er ađ auka fitu í fóđri á kostnađ próteins án ţess ađ ţađ komi niđur á vexti fiskanna. Ţorskurinn geymir fituforđa sinn í lifrinni en fita í holdi ţorsksins fer nánast aldrei yfir 1%. Óćskilegt er taliđ ađ lifrarhlutfall ţorsksins sé mjög hátt, en algengt er ađ ţađ sé í kringum 12% í eldisfiski, en ţađ er bćđi hćrra og lćgra í villtum fiski.

Í skýrslu verkefnisstjóra kemur fram ađ aukin fita í fóđri hefur lítil áhrif á stćrđ lifrar hjá stćrri fiski međan smćrri fiskarnir sýna marktćkan mun á vexti lifrar eftir fituhlutfalli í fóđri.

Ýmsar ađrar áhugaverđar niđurstöđur má lesa í skýrslunni: Fituţol ţorsks.

Tilvísunarnúmer AVS: R 040-04

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
header10


Útlit síđu:

 
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíđu eplica.