Fréttir
Úthlutun 2008 liggur fyrir
Nú liggur fyrir úthlutun AVS rannsóknasjóðsins fyrir árið 2008, ákveðið hefur verið að styrkja 64 verkefni að þessu sinni með samtals um 320 m.kr. Sjóðurinn hefur aldrei verið eins öflugur, en ráðstöfunarféð var 100 m.kr meira nú en á síðasta ári eða samtals rúmar 350 m.kr.
Fleiri umsóknir hafa verið til umfjöllunar hjá sjóðnum en áður eða rúmlega 130, þannig að það hefur verið unnin mikil vinna við að vega og meta öll þau áhugaverðu verkefni sem umsækjendur höfðu áætlað að vinna til að auka verðmæti sjávarfangs. Því miður er ekki möguleiki að mæta óskum allra umsækjenda og því ekki unnt að styrkja mörg áhugaverð verkefni.
Það sem af er þessu ári þá liggur fyrir að styrkja samtals 64 verkefni, þar af eru fimm forverkefni eða smáverkefni, en fyrr á árinu voru styrkt 10 forverkefni þannig að heildarfjöldi styrkja 2008 er orðinn 74. Eins og undanfarin ár þá eru umsóknir metnar í fjórum faghópum AVS sjóðsins þar sem teknar eru fyrir umsóknir sem taka á fiskeldi, líftækni, markaði og svo umsvifamesta flokknum sem tekur á umsóknum er falla að veiðum og vinnslu.
Mest áberandi meðal fiskeldisverkefnanna er „Kynbætur í þorskeldi og seiðaeldi“, en miklar væntingar eru um að þorskeldi geti átt mikilvæga framtíð hér á landi og því nauðsynlegt að leggja mikla áherslu á kynbætur og öflugt seiðaeldi. Sjóðurinn hefur einnig styrkt allnokkur verkefni er taka á öðrum þáttum þorskeldis. Verkefni til að styrkja markaðssetningu eldisbleikju eru einnig áberandi, enda afar mikilvægt að þessi íslenska eldistegund nái að skapa sér verðmætan sess á erlendum mörkuðum.
Til líftækniverkefna fara nokkuð hærri styrkir en undanfarin ár, sem sýnir að mikill kraftur er í rannsókna- og þróunarverkefnum á þessu sviði. Hugmyndir eru meðal Skagstrendinga, BioPol að fullnýta grásleppuna, og lífefnafræðingar hjá Matís ætla sér að vinna lífvirk efni úr m.a. sæbjúgum, svo eitthvað sé nefnt.
Markaðsverkefnin eru öllu færri nú en oft áður en segja má að bleikjumarkaðasverkefnin sem talin eru upp með fiskeldinu vegi það upp þannig að í heildina halda markaðsverkefnin sínum hlut.
Veiða og vinnsluumsóknir voru óvenju margar þetta árið enda er hér tekið á nánast öllu sem tengist hefbundinni fiskvinnslu, allt frá veiðum til fullgerðar vöru. Þarna er m.a. að finna verkefni sem fjalla um makríl, gildruveiðar á þorski, veiðar og vinnslu á lifandi kúfskel, lágmörkun olínotkunar fiskiskipa, næringar- og hollustuefni í íslenskum sjávarafurðum, svo eitthvað sé nefnt.
Innan tíðar verða settar inn nánari upplýsingar um öll þessi verkefni á heimasíðu sjóðsins.
Listi umsókna sem hlutu styrk 2008.

