Umsóknir 2012
Alls bárust sjóðnum 188 umsóknir um 948 milljónir króna í febrúar
Búið er að flokka og koma til faghópa umsóknum sem bárust AVS sjóðnum vegna styrkveitinga þessa árs. Fimm faghópar starfa á vegum AVS sjóðsins, einn um veiðar og vinnslu, aðrir um fiskeldi, markaði og líftækni auk þess sem sérsakur hópur fjallar um umsóknír í flokkinn "Sjávarbyggðir". Umsóknir eru síðan sendar til óháðra umsagnaraðila hver til tveggja aðila og beri þeim ekki vel saman er fenginn þriðji sérfræðingurinn til þess að meta umsóknina. Þess er gætt að öll úrvinnsla umsókna sé eins fagleg og kostur er, og er helsta hlutverk stjórnar að samræma tillögur faghópanna að þeim fjárveitingum sem sjóðurinn hefur til umráða. Vonast er til þess að forgangsröðun stjórnar verði lokið fyrir páska.
Umsóknir í ár virðast að sögn faghópanna almennt vera sterkari en oft áður og verður eflaust vandi að velja úr þeim. Aðeins um eða undir þriðjung umsókna verður hægt að styrkja miðað við fjárveitingar til sjóðsins.

