Fréttir

AVS á Sjávarútvegsráðstefnunni

Jákvæðar umræður um AVS á Sjávarútvegsumræðunni

14.11.2011

AVS bar oft á góma á Sjávarútvegsráðstefnunni, sem haldinn var í lok september og var gerður góður rómur að starfsemi sjóðsins og þau áhrif sem hann hefur haft á íslenskan sjávarútveg.

Sjávarútvegsráðstefnan var haldinn í annað sinn á Grand hóteli í Reykjavík í lok september. Ráðstefnan þótt - eins og hin fyrri - takast afar vel og var bæði fjölsótt og yfirgripsmikil. Greinilegt var að aðilar í sjávarútvegi bera hag AVS sjóðsins mjög fyrir brjósti og vilja að hann haldi áfram af sama þrótti og áður að styðja við og efla rannsóknir í íslenskurm sjávarútvegi, sem stuðla að auknu verðmæti sjávarafurða. Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís ohf flutti athyglisvert erindi um rannsóknir í sjávarútvegi og sýndi m.a. á einni glæru hvernig rannsóknir og aukið verðmæti sjávarfangs hefur þróast m.a. eftir að AVS sjóðurinn tók til starfa. Glæruna má sjá hér til hliðar.Matis

Senda grein

header19


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica