Fjörunytjar á Suðurnesjum
Sumarstarf að skoða útbreiðslu nytjategunda í fjörum á Reykjanesi unnið af Náttúrustofu Suðurnesja
AVS styrkti s.l. sumar nokkur fyrirtæki og stofnanir ttil þess að ráða fólk til sumarstarfa að ávkeðnum rannsóknaverkefnum. Eitt af þessum verkefnum var "Fjörunytjar á Suðurnesjum", sem Náttútustofa Reykjaness vann. Sjóðnum hefur borist viðamikil skýrsa um verkefnið og úrdrátt úr því má lesa hér neðar
"Fjörur Reykjanesskaga eru víðfeðmar og fjölbreyttar og bjóða upp á fjölmarga möguleika til fjörunytja. Verkefni þetta, sem styrkt er af AVS, skoðar útbreiðslu nytjategunda í fjörum Reykjanesskaga og byggir á kortlagningu Náttúrustofu Reykjaness á búsvæðum í fjörum svæðisins. Gerð var forkönnun á nýtingarmöguleikum vísitegunda sem notaðar eru við kortlagninguna, auk þess sem aðrar mögulegar fjörunytjar, sem snúa að nýtingu fjörunnar sjálfrar, voru kannaðar.
Fjörur Reykjanesskaga eru mikið notaðar til útivistar, hreyfingar, náttúruskoðunar og kennslu og eru mikilvægur hluti af náttúru- og menningarlandslagi svæðisins sem mikilvægt er að hlúa að og efla. Lífríki fjörunnar var mikið nýtt áður fyrr, en einungis í mjög litlum mæli nú á dögum. Borið var kennsl á 20 mögulegar nytjategundir í fjörum Reykjaness; hrossaþara (Laminaria digitata), beltisþara (Laminaria saccharina), marinkjarna (Alaria esculenta), klóþang (Ascopyllum nodosum), sagþang (Fucus serratus), klapparþang (Fucus spiralis), bóluþang (Fucus vesiculosus), dvergaþang (Pelvetia canaliculata), slafak (Ulva intestinalis), maríusvuntu (Ulva sp.), purpurahimnu (Porphyra umbilicalis), söl (Palmaria palmata), sjóarhrís (Ahnfeltia plicata), kóralþang (Corallina officinalis), fjörugrös (Chondrus crispus), sjóarkræðu (Mastocarpus stellatus), sandmaðk (Arenicola marina), þangdoppu (Littorina obtusata), klettadoppu (Littorina saxatilis) og krækling (Mytilus edulis).
Gífurleg tækifæri eru til frekar fjörunytja á svæðinu og á það sérstaklega við um nýtingu fjöruþörunga, sem nýta má á margvíslegan hátt. Beltisþari, marinkjarni, maríusvunta, purpurahimna og söl er dæmi um þörunga sem eru mikils metnir matþörungar og heilsufæði víða um heim. Dvergþang, hrossaþari, beltisþari, marinkjarni, sagþang, fjörugrös, kóralþang og klapparþang innihalda einnig ýmis lífvirk efni sem henta einkar vel í hverskyns húðvörur. Upprekna þörunga, sem víða er mikið af í fjörum Reykjanesskaga er einnig hægt að nýta sem úrvals jarðvegsáburð, auk þess sem vinna má jarðvegsbætiefni úr ferskum þörungum.
Mikilvægt er að efla meðvitund og þekkingu Íslendinga á þeim möguleikum sem finna má í auknum fjörunytjum. Þörf er talin á frekari rannsóknum á nýtingarmöguleikum fjöruþörunga og hagkvæmni þeirra auk þess sem efla þarf samstarf milli stofnana og aðila atvinnulífsins til þess að auka fjörunytjar.
Í kjölfar þessa verkefnis eru nú í gangi viðræður við aðila á svæðinu, m.a. við snyrtivörufyrirtæki, fiskútflytjanda og veitingahús, um að koma á fót þörungaklasa sem mun hafa það að markmiði að auka nýtingu og hámarka afrakstur af þeirri miklu þörungaauðlind sem finna má í fjörum Reykjanesskaga."

