Fréttir

Norræn verkefni

AVS hefur tekið þátt í að fjármagna þrjú norræn verkefni um hafiðnað

20.10.2011

Nordic Inovation Center hefur hleypt af stað verkefnum á sviði hafiðnaðar og hefur AVS sjóðurinn tekið þátt í þremur þeirra. Vænta má að í framtíðinni verði af frekari þátttöku sjóðsins í verkefnum af þessu tagi, en það opnar nýja möguleika fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir.

 

Nordic Innovation Center er norræn stofnun sem Ísland er aðili að og hefur aðsetur í Oslo.  Stofnunin styður verkefni um öll norðurlönd  og vinnur bæði með opinberum og einkareknum aðilum. Markmið stofnunarinnar er að vinna að nýjungum/nýsköpun á starfsvæðinu og að því að bæta og styrkja alþjóðleg viðskiptasambönd.  Markmiðið er að í viðskiptalegu samhengi séu norðurlönd nánast án landamæra.

            Eitt af áherslusviðum Nordisk Innovation Center nú er að styðja við verkefni sem varða hafiðnað (marine sector)  með verkefnaáætlun sem nefnist „Nordisk marine innovationasjonsprogram“.  Markmið þeirrar áætlunar er að auka getu hafiðnaðarins til nýsköpunar og þar með að auka arðbærni og samkeppnishæfni greinarinnar. Nokkur verkefni hafa þegar farið af stað í þessari áætlun

            Hjá AVS sjóðnum hefur verið ákveðið að taka þátt í þremur verkefnum úr þessari áætlun með fjárframlagi. Þessi verkefni eru:

1.      Greining á markaðs- og virðiskeðju sjávarfangs. Þar er verið að greina hvernig markaðs- og virðiskeðjan er hvað varðar sjávarfang, sem hefur orðið flóknari með árunum. Í fyrstu var fiskur fyrst og fremst fæða mannfólks en er nú einnig orðið mikilvægt hráefni í fóðurgerð fyrir dýr og í nokkrum mæli eru efni með uppruna í sjávarfangi notuð í fæðubótariðnaði, lyf og snyrtivörur. Á grundvelli niðurstaðna þessa verkefnis er vonast til þess að hægt sé að byggja ný viðskiptamódel og auka arðsemi í greininni. Hér má sjá skýrsluna í heild sinni.

2.       Kortlagning þekkingar um sjávarfang á matvörumarkaði og notendadrifinni nýsköpun í sjávarfangs matvælageiranum. Í verkefninu er reynt að greina þá vitneskju og þær upplýsingar, sem eru til um stöðu  norrænna sjávarafurða á heimsmarkaði og markaðslega og efnahagslega stöðu norrænna framleiðenda sjávarfangs. Í því sambandi er því slegið föstu að hér sé um einkar flókna atvinnugrein sem starfar á flóknum markaði en reynt er að draga saman allar upplýsingar, sem eru til er varða málið, og greina þær. Hér má sjá skýrsluna í heild sinni.

3.      Yfirlitsskýrsla: Nýsköpun og virðisauki í norrænum hafiðnaði. Þetta verkefni  miðar að því að greina þennan geira gaumgæfilega með það fyrir augum að gera sér grein fyrir þeim möguleikum til nýsköpunar, sem eru til staðar í allri virðiskeðju hafiðnaðar, og finna út á hvaða hátt er hægt að hafa mest áhrif til þess að þeir möguleikar sem eru fyrir hendi séu nýttir. Í þessu samhengi er lögð áhersla á að ekki er eingöngu hægt að líta til fiskveiða og –vinnslu heldur þarf einnig að taka með í myndina áhrif á tækjaframleiðendur og þjónustuaðila. Einnig þarf að taka með að sjávarfang sem aflað er hjá einni norrænni þjóð getur skapað vinnu eða verðmæti hjá annarri þjóð. Hér má sjá skýrsluna í heild sinni.

 

Kostnaður AVS sjóðsins við hvert þessara verkefna er NOK 15.000 og heildarkostnaður því NOK 45.000.

Senda grein

header1


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica