Fréttir
Eyvindarstofa hellir
Eyvindarstofa hellir

Eyvindarstofa á Blönduósi opnuð

Eyvindarstofa á Blönduósi, verkefni sem naut styrks úr flokknum "Efling sjávarbyggða" opnuð

12.10.2011

Í ár var opnað fyrir styrki um eflingu sjávarbyggða og var m.a. gert ráð fyrir því að styðja við menningar- og matartengda ferðaþjónustu vítt og breytt um landið. Stofnun og uppbygging Evindarstofu á Blönduósi er eitt af þessum verkefnum, sem nutu styrks, og herur stofan nú verið opnuð formlega og er tekin til starfa

Eyvindarstofa er staðsett fyrir ofan veitingarhúsið Pottinn, sem margir þekkja. Hún er reist til minningar og í anda Fjalla-Eyvinds og Höllu, en þau höfðust við víða um landi og m.a. í Húnavatnssýslu. Stofan á að minna á það umhverfi sem Eyvindur og Halla lifðu í og þannig myndar hún hina ágætustu umgjörð utan um mannfagnaði af ýmsu tagi t.d. fundi og veislur, þar sem þjóðlegur matur er hafður í hávegum. Sérstakur matseðill hefur verið útbúin með réttum sem ekki er að finna annars staðar og var það unnið í samstarfi við Matís ohf. Er óhætt að mæla með því að ferðamenn líti við og að hvetja heimamenn til þess að nota þá möguleika sem Eyvindarstofa býður upp á. AVS óskar eigendum til hamingju með vel unnið verk og vonar að Eyvindarstofa efli staðin og verði til góðs. Eyvindarstofa matsalur

Senda grein

header4


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica