Fréttir

Sumarstörf 2011

AVS styrkti 28 verkefni vegna sumarstarfa s.l. sumar.

26.9.2011

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið veitti fé til að styrkja sumarstörf hjá fyrirtækjum og stofnunum.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði frumkvæði að því að styrkja fyrirtæki og stofnanir til þess að ráða til sín fólk til að vinna að rannsóknaverkefnum í sumar. Þessi starfsemi hófst s.l. sumar sem viðbrögð við erfiðu atvinnuástandi í kjölfar kreppunar og þótti hafa heppnast mjög vel. Fé til þessa verkefnis kemur úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins og auk AVS tóku þátt í þessu verkefni Matís, Hafrannsóknastofnun og Fiskistofa. Á vegum AVS voru 28 verkefni styrkt en hvert verkefni vat styrkt um 500 þúsund kr. til eina milljón króna. Alls voru rúmlega 20 milljónum króna veitt til þessa á vegum AVS.

Senda grein

header15


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica