AVS á Sjávarútvegssýningunni
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið verður með upplýsingar um AVS á sýningunni
Íslenska sjávarútvegssýningin er meðal stærstu viðburða af þessu tagi í okkar heimshluta Sjáarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið verður ásamt Matís og Hafrannsóknastofnun með bás á sýningunni. Básinn er merktur C 50. Þar verður starfsemi ráðuneytisins og stofnanna þess kynnt. M.a. verður upplýst um starfsemi AVS rannsóknasjóðs í sjávarútvegi eftir því sem áhugi er fyrir hendi. Sýningin verður haldin í Kópavogi dagana 22. til 24. september,, n.k..

