Veiði, vinnsla og útflutningur á lifandi kúfskel
Lokið er AVS-verkefninu "veiði, vinnsla og útflutningur á lifandi kúfskel" sem unnið hefur verið af Ísfélagi Vestmannaeyja hf. á Þórshöfn og Matís ohf. Markmið verkefnisins var að þróa veiðar, vinnslu, geymslu, pakkningar,flutning og markaðssetningu á lifandi kúfskel fyrir Evrópumarkað. Afrakstur verkefnisins hefur að mestu verið í samræmi við væntingar hvað varðar veiði-, vinnslu- og flutningshlutann, en markaðshlutinn hefur enn ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að.
Um margra árathuga skeið hefur kúfskel verið veidd hér við land. Í fyrstu var hún aðallega nýtt til beitu, en á síðustu tveim til þrem árathugum hafa ýmsir aðilar reynt að nýta hana til manneldis og hefur þá aðallega verið horft til vinnslu á kúffisk sem hráefni í súpur. Meðal annars hefur verið komið upp slíkum verksmiðjum á Flateyri og á Þórshöfn, en rekstur þeirra hefur verið mjög erfiður og er nú svo komið að öll vinnsla á kúfskel hefur lagst af hér á landi. Er þetta miður, þar sem kúffiskstofninn við strendur Íslands er í góðu ástandi og hefur Hafrannsóknastofnunin gefið út að óhætt sé að veiða allt að 31.500 tonn á ári úr stofninum án þess að gengið sé of nærri honum. Hér er því um vannýttan stofn að ræða.
Árið 2006 hófu aðstandendur Íslensks kúffisks ehf. á Þórshöfn að kanna möguleikana á að veiða og vinna lifandi kúfskel fyrir Evrópumarkað, en víða í mið og suður Evrópu eru góðir markaðir fyrir lifandi samlokuskeljar. Þar sem um var að ræða algjörlega nýja vöru var ljóst að þetta krefðist þróunar á veiðum, vinnslu, flutningi og markaðssetningu sem væri ólík því sem áður hefur þekkst við nýtingu á kúffiskstofninum hér við land. Þurfti því að fara fram umfangsmikið rannsóknarstarf áður en unnt yrði að markaðssetja fullkláraða vöru.
Mikil vinna var lögð í þróun á veiðum, vinnslu, geymslu, flutning og kynningu á skelinni fyrir mögulegum kaupendum. Segja má að afrakstur þessarar vinnu hafi almennt verið mjög góður og er nú svo komið að tekist hefur að finna lausnir á flestum þeim úrlausnarefnum sem lagt var af stað með í upphafi. Lifandi kúfskel er tilbúin sem fullkláruð vara. Hún stenst fyllilega samanburð við aðrar lifandi samlokuskeljar sem seldar eru á mið og suður Evrópumarkaði hvað varðar gæði, heilnæmi og afhendingaröryggi. Hins vegar hefur sala á vörunni látið standa á sér. Virðist aðal ástæðan fyrir sölutregðunni stafa af því hve íhaldssamir neytendur lifandi samlokuskelja eru. Þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að prufa aðrar skeljar en þær sem þeir þekkja. Ísfélag Vestmannaeyja hf. mun halda áfram að vinna í markaðsmálum varðandi lifandi kúfskel þar sem aðstandendur fyrirtækisins vita að varann er fyllilega samkeppnishæf við aðrar samlokuskeljar sem seldar eru á Evrópumarkaði.
Gífurlega mikil vinna hefur verið lögð í þróun á veiðum, vinnslu og útflutningi á lifandi kúfskel á síðastliðnum fjórum árum af hálfu Ísfélags Vestmannaeyja og annarra er að verkefninu hafa komið. Vill fyrirtækið þakka Matís, Útflutningsráði og sendiráði Íslands í París fyrir vel unnin störf. Einnig vill Ísfélagið sérstaklega þakka AVS sjóðnum og Tækniþróunarsjóði Rannís fyrir að taka þátt í fjármögnun verkefnisins, en án þeirra hefði ekki verið mögulegt að fara út í verkefnið.
Nánari upplýsingar um afrakstur verkefnisins veitir Siggeir Stefánsson hjá Ísfélagi Vestmannaeyja
Tilvísunarnúmer AVS: R 061-08

