Beint í leiðarkerfi vefsins.
Lokið er AVS-verkefninu "veiði, vinnsla og útflutningur á lifandi kúfskel" sem unnið hefur verið af Ísfélagi Vestmannaeyja hf. á Þórshöfn og Matís ohf. Markmið verkefnisins var að þróa veiðar, vinnslu, geymslu, pakkningar,flutning og markaðssetningu á lifandi kúfskel fyrir Evrópumarkað. Afrakstur verkefnisins hefur að mestu verið í samræmi við væntingar hvað varðar veiði-, vinnslu- og flutningshlutann, en markaðshlutinn hefur enn ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að.
Lesa nánarKræklingarækt hefur verið stunduð á tilraunastigi víðsvegar við landið í nokkurn tíma og hafa frumkvöðlar náð tökum á ræktunaraðferðum sem henta fyrir íslenskar aðstæður og fyrstu fyrirtækin eru að hefja uppbyggingu sem byggir á þeirri þróun. Í Evrópu og Kanada er kræklingarækt rótgróin matvælagrein og njóta Íslendingar góðs af því að hafa aðgang að tækni sem þegar hefur verið þróuð til ræktunar og vinnslu kræklings. Aðstæður hér við land eru þó ekki alltaf sambærilegar og hefur þróunarvinna á Íslandi m.a. falist í að aðlaga tækni að íslenskum aðstæðum.
Lesa nánar