Fréttir
Egils_Sild
Egils_Sild

Geymsluþol reyktra síldarflaka

18.10.2010

Notkun rotvarnarefna hefur veruleg áhrif á lengd geymsluþols reyktra síldarflaka og í þessu AVS verkefni kom í ljós að sorbat meðhöndlun síldarflaka veitti bestu rotvörnina gegn örveruvexti.

Lokið er verkefni um athugun á geymsluþoli reyktra síldarflaka, með og án rotvarnarefna sem pökkuð voru og geymd í lofttæmdum umbúðum. Verkefnið var unnið af Matís í samvinnu við Egilssíld á Siglufirði.

Niðurstöður verkefnisins leiddu í ljós að síldarflök án rotvarnarefna sýndu fyrstu skemmdareinkenni eftir 10 vikna geymslu við 7°C og eftir 12 vikur í síldarflökum sem rotvarin voru með bensóati. Skemmdareinkenni fundust þó ekki í síldarflökum sem rotvarin voru með sorbati eftir 22 vikna geymslutíma en varð þó vart eftir 40 vikna geymslu við 7°C.

Hlutfallslega langt geymsluþol reyktra síldarflaka í lofttæmdum umbúðum stafar af mörgum þáttum eins og saltinnihaldi, reykingu, lofttæmingu og hitastigi við kæligeymslu. Í rannsókninni veitti sorbat meðhöndlun síldarflaka bestu rotvörn gegn örveruvexti og einnig reyndust sorbat meðhöndluð síldarflök koma best út í óformlegu skynmati. Hvort það stafi af hindrun sorbats á örveruvöxt eða að það dragi úr hraða efna- og eðlisfræðilegra niðurbrotsþátta í samanburði við síldarflök með bensóati eða án rotvarnarefna þarfnast frekari skoðunar.

Skýrsla verkefnisstjóra: Geymsluþol reyktra síldarflaka í loftæmdum umbúðum.

Tilvísunarnúmer AVS: S 2-026-09



Senda grein

header3


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica