Rannsóknir á beitukóngi
Beitukóngur (Buccinum undatum L.) er snigill sem lifir frá fjöru að 1200 m dýpi. Útbreiðsla beitukóngs er bundin við norður Atlantshaf frá Spáni norður til Grænlands og vestur og suður um til Main í Bandaríkjunum. Beitukóngur er meðal annars nýttur til manneldis og hér við land er beitukóngur veiddur í Breiðafirði.
Vör sjávarrannsóknasetur við Breiðafjörð fékk styrk hjá AVS til að vinna rannsóknaverkefni sem hafði það markmið að kanna kynþroskastærð, stærðardreifingu, mökunartíma og svipfar beitukónga á 10 svæðum í Breiðafirði. Einnig var stofnerfðafræði beitukónga í Breiðafirði könnuð og borin saman við stofna beitukónga í Faxaflóa, Húnaflóa og við Færeyjar.
Meðalstærð veiddra beitukónga á sýnatökustöðvunum 10 var 49 – 57 mm. Beitukóngar urðu kynþroska við 45 – 70 mm hæð skeljar og meðalaldur við kynþroska var á bilinu 4,7 – 7,5 ár. Mánaðarlegur samanburður á hlutfallslegri þyngd eista miðað við þyngd beitukóngs bendir til þess að tímgun beitukónga í Breiðafirði eigi sér stað á haustin og fram á miðjan vetur, líkt og tíðkast í Evrópu. Svipfarsbreytileiki var mikill milli beitukónga frá stöðvunum 10, í flestum tilfellum voru 4 - 6 útlitsbreytur beitukónga marktækt frábrugðnar á milli svæða, af þeim sex útlitsbreytum sem voru prófaðar. Ennfremur var svipfar beitukónga marktækt ólíkt milli Breiðafjarðar og Færeyja en svipfar beitukónga frá Húnaflóa og Færeyjum var ekki marktækt frábrugðið á milli svæða.
Raðgreining á stuttum röðum hvatberagenanna 16S rRNA og COI leiddi í ljós að 12 16S rRNA og 16 COI arfgerðir voru til staðar á athugunarsvæðinu. Tíðni arfgerða var borin saman á milli svæða sem og við svipfar þeirra, en ekki var samræmi á milli breytileika í arfgerð og svipfari. Marktækur munur á tíðni arfgerða var til staðar innan Íslands (Faxaflói, Breiðafjörður, Húnaflói) og milli Færeyja og Íslands en ekki innan Breiðafjarðar.
Aukin þekking á líffræði beitukóngs í Breiðafirði er mikilvægt innlegg í umræðuna um sjálfbæra nýtingu tegundarinnar.
Tilvísunarnúmer AVS: R 010-07

