Lífvirk efni úr brúnþörungum
Þróuð hefur verið aðferð til vinnslu á karóten-efninu fucoxanthin úr brúnþörungum á vegum SagaMedica með stuðningi AVS-sjóðsins.
Brúnþörungar eru í miklum mæli við Ísland, og eru t.d. þúsundir tonna tekin og unnin af Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum á ári hverju. Fucoxanthin er hluti af ljóstillífunarkerfi brúnþörunga og ræður mestu um lit þeirra. Efnið hefur notið vaxandi athygli á síðustu árum vegna ýmis konar lífvirkni, bæði í tengslum við krabbamein en einnig vegna þess að það er talið vænlegt til megrunar vegna áhrifa á fitubruna. Nokkrar fæðubótavörur hafa verið markaðssettar erlendis á grundvelli fucoxanthin-innihalds.
Rannsóknir á hráefni gáfu til kynna að bóluþang og sagþang innihéldu mest af efninu af brúnþörungum við Ísland.
Vinnsluaðferðin gerir kleift að hreinsa efnið verulega án þess að nota lífræna leysa aðra en etanól. Stefnt er að því að nýta aðferðina til frekari vöruþróunar til framleiðslu fæðubótarefna úr brúnþörungum.
Skýrsla verkefnisstjóra: Rannsóknir á lífvirkni og lífvirkum karótenefnum í sjávargróðri
Tilvísunarnúmer AVS: R 009-08

