Eldisþéttleiki og fóðrunartíðni hafa mikil áhrif á vöxt þorskseiða
Nýleg rannsókn sýnir að þéttleiki þorskseiða í eldi og fóðurtíðni hefur mikil áhrif á vöxt seiðanna. Ef ekki er fylgst vel með þéttleika ungseiða og þau fóðruð nógu títt má búast við töluvert lakari vexti og meiri afföllum vegna sjálfsráns.
Verkefnið “Áhrif fóðrunartíðni og þéttleika á ung þorskseiði” sem AVS sjóðurinn styrkti árið 2009, var framkvæmt í eldisaðstöðu Háskólans á Hólum í Verinu á Sauðárkróki í samstarfi Hólaskóla og Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
Framkvæmd var ein tilraun þar sem könnuð voru áhrif mismunandi eldisþéttleika (2500 eða 5000 fiskar á m3) og fóðurdreifingar í tíma (fóðrun yfir 2 eða 16 klst. á sólarhring) á vöxt, stærðarbreytileika og tíðni sjálfráns (cannibalism) þorsks yfir 40 daga tímabil á fyrsta sumri eftir myndbreytingu úr lirfu í seiði.
Þessi rannsókn sýndi að eldisþéttleiki og fóðrunartíðni hafa mikil áhrif á vöxt þorskseiða. Í lok tilraunar voru seiði að jafnaði 18.7% þyngri í lágum þéttleika (2.042 g) en í háum þéttleika (1.721 g) og 18.9% þyngri þar sem fóður var dreift í tíma (2.044 g) heldur en þegar sama fóðurmagn barst í eldisker á stuttum tíma á hverjum degi (1.719 g). Samanlögð áhrif þéttleika og fóðrunartíðni voru því umtalsverð; fiskar sem aldir voru við lágan þéttleika og fóður sem var dreift í tíma, voru 40% þyngri í lok tilraunar en fiskar sem aldir voru við háan þéttleika og hnappdreift fóður.
Lifun þorskseiða á meðan á tilrauninni stóð var 88.2% en afföll vegna sjálfráns, þar sem stærri seiði éta þau minni sömu tegundar, voru að jafnaði mun meiri í háum þéttleika (4.9%) en í lágum þéttleika (1.5%).
Þessi tilraun sýnir mikilvægi þess að ala ung þorskseiði við kjörþéttleika og að fóðrun á þessu lífsstigi sé ekki einungis bundin við stutt tímabil á hverjum degi. Ef ekki er fylgst vel með þéttleika ungseiða og þau fóðruð nógu títt, má búast við töluvert lakari vexti (allt að 40%) og meiri afföllum vegna sjálfráns. Saman geta þessir umhverfisþættir því haft umtalsverð áhrif á kostnað við seiðaeldi og velferð eldisfiska.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Óli Steingrímsson hjá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum.
Skýrsla verkefnisins: Áhrif fóðurtíðni og þéttleika á ung þorskseiði
Tilvísunarnúmer AVS: R 072-09

