Fréttir
Bleikja_a_bordum
Bleikja_a_bordum

Fiskur fyrir ferðamenn

23.9.2010

Matarsmiðja Matís á Höfn hefur enn á ný tekið þátt í að koma með nýjar vörur á markað, nú voru þróaðar nýjar afurðir úr bleikju og saltfiski fyrir nýstárlega eldunaraðferð, sem hentar sérstaklega vel fyrir ferðamenn sem eru með grillið í skottinu.

Það hefur lengi verið í umræðunni að erfitt sé fyrir ferðamenn að verða sér út um hentugt sjávarfang til eldunar á ferðalögum, auk þess sem fábreytt úrval er að finna á matsölustöðum. Með þessu AVS verkefni er gerð tilraun til þess að þróa nýjar afurðir sem gætu komið fiski á borð ferðmanna.

Afurðir verkefnisins eru nýjar vörur á formi sælkerameðlætis fyrir bleikju og saltfisk sem einnig má nota fyrir annað sjávarfang. Einnig urðu til uppskriftir og leiðbeiningar um hvernig nota eigi vöruna á ferðalögum og annars staðar. Lagt er til að notaður verði grillplatti úr íslensku birki beint á grillið og geta nú ferðamenn á Suð-Austurlandi keypt sér bæði bleikju og saltfisk úr héraði ásamt jurtakryddaðri andafitu, birkisalti og birkiplatta til að nota á grillið.

Umbúðir voru hannaðar fyrir fiskinn, andafitu og birkisalt. Markaðssetningu mun hefjast á Markaðstorgi Hornafjarðar þar sem vörurnar verða til sölu ásamt aðgengilegum upplýsingum fyrir ferðamenn. Fylgifiskar hafa nú þegar hafið sölu á birkisalti í verslun sinni í Reykjavík. Birkisaltið var notað við matreiðslu í matreiðsluþáttunum Fagur fiskur sem sýndir hafa verið í sjónvarpinu við miklar vinsældir en gerð þáttana var einnig styrkt af AVS sjóðnum.

Sjá: Leiðbeiningar um eldun.

Tilvísunarnúmer AVS R 024-09



Senda grein

header17


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica