Árangur sumarstarfa á vegum AVS að koma í ljós
Þessa dagana er verið að skila inn upplýsingum um sumarstörfin sem AVS styrkti í vor, en alls voru styrkt 28 verkefni sem sköpuðu störf fyrir sama fjölda einstaklinga í sumar.
Þeir sem hafa verið að skila upplýsingum um verkefnin síðustu daga hafa verið mjög ánægðir með þetta framtak AVS og segja að þessi stuðningur hafi leitt af sér góða vinnu sem eigi eftir að nýtast vel í framtíðinni.
Verkefnin sem unnin voru eru mjög fjölbreytt allt frá því að vera liður í vísindalegri rannsókn í það að vera mjög praktísk úttektar- eða þróunarverkefni fyrir fyrirtæki. Heyrst hefur einnig af því að einstaklingar sem fengu tímabundna vinnu í sumar hafa fengið áframhaldandi starf hjá fyrirtækjum sem styrk fengu og verður það að teljast mjög jákvæður afrakstur þessa átaks.
Eitt þessara fyrirtækja sem styrk fengu var Datamarket (www.datamarket.com) þar sem gerð var úttekt á gagnaflæði í íslenskum sjávarútvegi og er það mjög athyglisverð samantekt sem þeir fengu sumarstarfsmann til að vinna. Í skýrslunni sem AVS sjóðurinn birtir hér á síðunni má fá mjög gott yfirlit yfir gögn og söfnun gagna í sjávarútvegi. Það er mikilvægt fyrir alla þá sem eru að skoða möguleika og tækifæri í sjávarútvegi að hafa gott aðgengi að áreiðanlegum gögnum settum fram á skipulegan og myndrænan máta. Á heimasíðu Datamarket má sjá hvernig þeim tekst til með að koma gögnum úr ástandsskýrslu Hafró á framfæri. Gagnasett frá Hafrannsóknastofnuninni.
Skýrslan: Gögn í sjávarútvegi

