Fréttir
Framleidsla_a_sjalfvirkum_potufrsyti
Fyrsta platan í sjálfvirkan plötufrysti tilbúin

Framleiðsla á sjálfvirkum plötufrystum flutt til Íslands frá Ítalíu

16.8.2010

Í sumar var lokið við að flytja framleiðslu ítalska fyrirtækisins SamiTech Srl. til Akraness, og er þar nú hafin framleiðsla á sjálfvikum plötufrystum. Þessi framleiðsla skapar um 10-15 ný störf hjá Skaganum hf.

AVS sjóðurinn hefur undanfarin ár auglýst eftir umsóknum í átaksverkefni þar sem áhersla er lögð á að flytja inn nýja þekkingu eða fyrirtæki til að skapa ný störf tengd sjávarútvegi. Skaginn hf. fékk styrk til að flytja inn framleiðslu og tækniþekkingu frá Ítalíu til þess að framleiða hér á landi sjálfvirka plötufrysta.

SamiTech Srl. er fyrirtæki sem hefur um árabil framleitt sjálfvirka plötufrysta sem notaðir hafa verið í margskonar matvælavinnslu um heim allan. Hér á landi er fyrirtækið þó best þekkt fyrir framleiðslu sína á frystum sem notaðir eru í öllum helstu uppsjávarvinnslum landsins. Það má með sanni segja að frystarnir séu einstakir og markaðsráðandi á sínu sviði. Þess ber að geta að plötufrystar sem þessir eru hvergi annarsstaðar framleiddir hér á landi og því má segja að um mjög verðmæta þekkingu sé að ræða.

Verkefnið hefur leitt af sér umtalsverða vinnu hér á landi og þá einna helst við undirbúning á flutningi verksmiðjunnar, yfirtöku á hönnun sem og við uppsetningu.  Verksmiðjan hefur nú verið sett upp, tækjabúnaður verið prófaður og verksmiðjan uppfyllir öll skilyrði fyrir framleiðslu.  Að auki má gera ráð fyrir 10-15 nýjum störfum í beinum tengslum við framleiðsluna sjálfa auk þess sem hún leiðir af sér önnur störf í tengslum við vinnslukerfi í kringum sjálfvirku plötufrystana.

Ásamt því að auka gjaldeyristekjur mun verkefnið vonandi nýtast íslenskum sjávarútvegi vel.  Með flutningi fyrirtækisins, hingað til lands, hefur náðst að tengja saman alla vinnslukeðjuna og þar af leiðandi má segja að náðst hafi að gera allt vinnslukerfið, frá móttöku til pökkunar á unnum afurðum, íslenskt – þ.e.a.s. með íslenskum búnaði aðlagaðan að íslenskum sjávarútvegi og þörfum hans.

Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Árnason hjá Skaganum hf (www.skaginn.is)

Tilvísunarnúmer AVS: R 005-09



Senda grein

header3


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica