Bleikjan í stöðugri sókn
Frá árinu 2007 hefur AVS sjóðurinn styrkt nokkur verkefni til að efla markaðssetningu á bleikjuafurðum frá Íslandi. Nokkuð ljóst er að þessi stuðningur hefur komið bleikjuframleiðendum vel þar sem salan á bleikjunni hefur verið afar góð og haldist í hendur við aukna framleiðslu.
Árið 2005 var framleiðsla bleikju tæp eitt þúsund tonn og hefur framleiðslan verið í stöðugum vexti síðan þá og stefnir framleiðslan í 3.500 tonn á þessu ári, og gera framleiðendur ráð fyrir að framleiðslan verði jafnvel komin í 5-6.000 tonn að fimm árum liðnum. Það er því nokkuð ljóst að ekki má slá slöku við í markaðsstarfinu næstu árin.
Fyrirtækið Menja ehf hefur verið eitt þessara fyrirtækja sem hefur sinnt sölu- og markaðsmálum fyrir íslenska bleikjuframleiðendur mörg undanfarin ár og hefur árangur fyrirtækisins verið afar góður. Tala þeir um að árið 2009 hafi verið eitt það besta frá upphafi og þrátt fyrir aukið framboð þá hefur söluverð í erlendum myntum ekkert lækkað, sem þýðir mikla hækkun á skilaverði til framleiðenda vegna gengisbreytinga, en á móti kemur þó að aðföng til framleiðslunnar hafa hækkað umtalsvert.
Niðurstaða markaðsverkefnis Menju var að það tókst að selja alla bleikjuna og halda sama eða hærra verði vörunnar. Nokkuð var um að bleikja færi inn á nýja markaði og má þar helst nefna vesturströnd Bandaríkjanna. Einnig hefur meginland Evrópu sótt í sig verðið. Sala á bleikju til Skandinavíu jókst verulega og verður sá góði árangur ekki síst rakinn til verulegrar vinnu sem lögð var í þann markað.
|
| Auglýsing frá Menju ehf í Leifsstöð |
Árangur af þessu verkefni er augljós, því þegar því var ýtt úr vör árið 2007 var mikið til af óseldum birgðum og fiski sem beið slátrunar, en nú er staðan sú að engar birgðir eru eftir og öll aukningin seld. Í ljósi þessa þá eru ýmsir að huga að aukningu í framleiðslu, auk þess sem von er á nýjum framleiðendum, þannig að Menju bíða krefjandi markaðsverkefni á næstu árum.
Greinin býr nú við sterkari eftirspurn en nokkurn tíma áður. Þrátt fyrir aukna framleiðslu er nú svo komið að vöntun er á bleikju á markaðnum. Þetta skilar sér í sjálfbæru fiskeldi sem aflar mikilvægra gjaldeyristekna fyrir þjóðarbúið. Um þessar mundir ríkir mikil bjartsýni í bleikjueldinu og margir að fara af stað í eldi. Gert er ráð fyrir að framleiðsla muni aukast umtalsvert á næstu misserum. Útlit er fyrir að markaðurinn muni geta tekið við þessu aukna magni en fara verður varlega og gæta að offramboði.
Menja hefur markvisst tekið þátt í sýningum og kynningum erlendis og útbúið fyrirtaks kynningarefni á heimasíðu sinni www.menja.is
Nánari upplýsingar veitir Árni Ólafsson framkvæmdastjóri Menju ehf.
Tilvísunarnúmer AVS: R 013-07

