Nýr glæsilegur bæklingur um meðhöndlun á fiski
Það fer ekki milli mála að rétt meðhöndlun á fiski um borð í fiskiskipum skiptir öllu máli ef gera á sem mest verðmæti úr aflanum. Blóðgun, slæging, þvottur og kæling eru lykilhugtökin og er gerð grein fyrir mikilvægi þeirra í þessum nýja bæklingi.
Stuttu eftir að AVS sjóðurinn tók til starfa árið 2003 var gefinn út sambærilegur bæklingur af Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Upplag hans var uppurið fyrir nokkru og því var brugðið á það ráð að ráðast í endurgerð bæklingsins svo tryggt væri að bestu fáanlegar upplýsingar um rétta meðhöndlun væru ávallt til staðar sem víðast.
Það er nauðsynlegt að rifja reglulega upp hvað þarf til svo gæði afla rýrni ekki. Í bæklingnum er vitnað í gamlan málshátt „ af vondu leðri gjörast ei góðir skór“ það er ekki hægt að framleiða góða afurð úr lélegu hráefni. Það er fátt ömurlegra en að fá til vinnslu illa blóðgaðan eða kældan afla sem er farinn að láta verulega á sjá, jafnvel eftir tiltölulega stuttan tíma frá veiði. Ef farið er eftir þessum leiðbeiningum sem í bæklingnum er að finna þá er öruggt að til vinnslu berst fyrsta flokks hráefni.
Bæklingnum verður dreift víða um land í samvinnu við m.a. Landsamband smábátaeigenda,einnig er hægt að óska eftir eintaki með að senda póst á matis(at)matis.is eða hringja í 422 5000.
Einnig er hægt að skoða bæklinginn hér: Mikilvægi góðrar meðhöndlunar á fiski.
Tilvísunarnúmer AVS: R 011-09

