Sjávarútvegsráðstefnan er fyrir alla!
Fyrsta sjávarútvegsráðstefnan verður haldin 6.–7. september 2010 á Grand Hótel í Reykjavík. Ráðstefnan er með vefinn www.sjavarutvegsradstefnan.is þar sem hægt er að sækja dagskrá og aðrar upplýsingar.
Markmið sjávarútvegsráðstefnunnar er að ná saman þversniði úr greininni til að vinna að framförum og sókn. Sjávarútvegsráðstefnan er vettvangur þar sem menn hittast, styrkja sambönd og samstarf í greininni. Á ráðstefnunni verður fjallað um mikilvæg viðfangsefni á sviði sjávarútvegs og vonast er til að hún verði uppspretta hugmynda og hvatning til góðra verka sem ráðstefnugestir hafa sem veganesti í lok hennar.
Á hverju ári verður tekið fyrir nýtt efni og á fyrstu ráðstefnunni verður lögð áhersla á eftirfarandi þema: markaðir og vöruþróun, tækifæri til verðmætasköpunar, vörumerkið Ísland, umhverfismerkingar og ferðaþjónusta og sjávarútvegur. Á ráðstefnunni verða haldin tæplega 30 erindi um ýmis málefni sjávarútvegsins og er nánari upplýsingar að finna hér.
Skráning hafin Þeir sem skrá sig fyrir 1. ágúst greiða 6.000 kr. ráðstefnugjald. Það hækkar síðan upp í 9.000 kr og þeir sem skrá sig nokkrum dögum áður en ráðstefnan hefst greiða 12.000 kr. Nemar greiða hálft ráðstefnugjald.

