Fréttir
Merki um ábyrgar fiskveiðar
Responsible Fisheries

Vottun ábyrgra fiskveiða Íslendinga

7.6.2010

Fiskifélag Íslands hóf alþjóðlegt kynningar- og umsagnarferli 1. júní sl. vegna kröfulýsingar sem vottun ábyrgra fiskveiða mun byggja á. AVS sjóðurinn hefur styrkt þetta verkefni frá byrjun.

Tilgangur vottunarinnar er að sýna fram á með gagnsæjum hætti að staðið sé að fiskveiðum og fiskveiðistjórnun á Íslandi á ábyrgan og alþjóðlega viðurkenndan hátt í samræmi við kröfur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO. Leiðbeiningar um hvernig skila á inn umsögnum og athugasemdum er að finna á vefslóðinni www.responsiblefisheries.is

Nánari upplýsingar veitir Finnur Garðarsson í síma 896 2400.



Tilvísunarnúmer AVS R 016-07
Senda grein

header9


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica