Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fyrsta sjávarútvegsráðstefnan verður haldin 6.–7. september 2010 á Grand Hótel í Reykjavík. Ráðstefnan er með vefinn www.sjavarutvegsradstefnan.is þar sem hægt er að sækja dagskrá og aðrar upplýsingar.
SINTEF í Noregi skipuleggur mjög áhugaverða ráðstefnu um uppsjávarfiska 30 ágúst nk í samstarfi við Matís á Íslandi, DTU í Danmörku og Chalmers í Svíþjóð. Ráðstefnan verður haldin á Best Western Oslo Airport Hotel, Gardermoen í Noregi. Ráðstefnan fjallar um veiðar og vinnslu á uppsjávarfiski, ásamt hagnýtum rannsóknum.
Nú er lokið verkefninu „Sameindafræðileg rannsókn á fjölbreytileika bakteríusamfélags í vinnsluumhverfi og skemmdarferli kældra fiskafurða“ sem styrkt var af AVS. Verkefnið hófst árið 2007 og síðan þá hefur þekking og skilningur á örverufræði fiskafurða og vinnsluumhverfis aukist til muna. Rannsóknarspurningar á þessu sviði eiga vel við í dag þegar mikil eftirspurn er í iðnaðinum eftir leiðum til að auka gæði og geymsluþol sjávarafurða en þekking á örverufræðilegum þáttum er lykillinn í þeirri vegferð.
Lífvirk efni eru skilgreind sem efni er geta haft heilsubætandi áhrif. Þau geta hugsanlega unnið gegn álagi í líkamanum (“oxidative stress”), háum blóðþrýstingi, háu kólestróli og bólgumyndun svo eitthvað sé nefnt. Náttúruleg andoxunarefni má nota sem heilsusamleg fæðubótarefni til að vinna gegn oxun í líkamanum en það má einnig nota þau í matvæli til að auka stöðugleika, bragðgæði og næringargildi þeirra.
Fiskifélag Íslands hóf alþjóðlegt kynningar- og umsagnarferli 1. júní sl. vegna kröfulýsingar sem vottun ábyrgra fiskveiða mun byggja á. AVS sjóðurinn hefur styrkt þetta verkefni frá byrjun.