Fréttir
Merki AVS
Merki AVS

Úthlutun 2010 liggur fyrir

19.5.2010

Fjöldi umsókna til AVS sjóðsins var svipaður í ár og 2009 sem var metár og greinilegt að það er mikil hugmyndavinna í gangi um allt land. Alls bárust um 160 umsóknir þar sem sótt var um ríflega 800 m.kr. og greinilegt að það yrði mjög vandasamt verk að velja umsóknir sem styrkja ætti.

Sjóðurinn hafði um 9% minna til ráðstöfunar árið 2010 miðað við síðasta ár og kom það niður á fjölda styrktra verkefna, mörg verkefni eru að fá töluvert minna úthlutað en sótt var um þannig að það liggur fyrir að verkefnisstjórar þurfa að gera meira fyrir minna.

Eins og undanfarin ár þá hefur sjóðurinn raðað umsóknum niður á fjóra mismunandi faghópa það er fiskeldi, líftækni, markaðsverkefni og verkefni sem tengjast veiðum og vinnslu. Skipting milli faghópa hefur verið nokkuð svipuð milli ára fram til þessa, en nú gerðist það að markaðsumsóknum fjölgaði umtalsvert. Sjóðurinn hefur líka verið að kalla eftir umsóknum sem eiga styttra í að skila verðmætum.

Langflest verkefnin eru eins og áður samstarfsverkefni nokkurra aðila og er mjög algengt að fyrirtækin séu að vinna með rannsóknafyrirtækjum og háskólum að ýmsum lausnum til að auka verðmæti sjávarfangs.

Hér má sjá lista styrktra verkefna 2010

Innan fárra daga verða nánari upplýsingar um þessi verkefni komin á heimasíðu sjóðsins.



Senda grein

header15


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica