Heilbrigður þorskur
Áföll vegna sýkingar í þorskeldi eru algeng og aukin þekking á ónæmiskerfi þorsksins er eitt af áherslu sviðum framtíðarinnar. Þorskur myndar ekki hefðbundin mótefna svör og rannsóknir á náttúrulega ónæmiskerfinu (e. innate immunity) eru þar af leiðandi sérstaklega mikilvægar í þorski til þess að finna leiðir til að verja fiskinn gegn sjúkdómum.
Markmið verkefnisins var að greina tjáningu bakteríudrepandi peptíða, sem eru partur náttúrulega ónæmiskerfisinu, í heilbrigðum og sýktum þorski, en jafnframt á mismunandi þroskastigum. Í verkefninu var þorskur sýktur með bakteríunni sem veldur kýlaveikibróður og magn bakteríudrepandi peptíða af gerð cathelicidin var mælt í mismunandi vefum. Rannsóknir sýndu að cathelicidin magn jókst við sýkingu sem bendir til þess að bakteríudrepandi peptíð hafa hlutverk í ónæmiskerfi þorsks. Magn cathelicidin mRNA var líka athugað í þorsklirfum og niðurstöður gefa til kynna að meðfædda ónæmiskerfi þorsksins er virkt snemma í þroskun fisksins og svara örvun með aukinni tjáningu á bakteríudrepandi peptíðum.
Niðurstöður úr þessu verkefni mynda grundvöll fyrir áframhaldandi rannsóknir á hlutverki og virkni cathelicidina og vonir standa til að í framtíðinni megi nýta peptíðin sem forvarnir gegn sjúkdómum í fiskeldi.
Skýrsla verkefnisstjóra: Heilbrigður þorskur - Greining á náttúrulegum varnarefnum í þorski
Tilvísunarnúmer AVS: S 031-08

