Ekki vantar hugmyndirnar
Umsóknafrestur AVS sjóðsins rann út 1. febrúar síðastliðinn og nú liggja fyrir ríflega 130 umsóknir um styrki til verkefna sem öll hafa það að markmiði að auka verðmæti sjávarfangs.
Á undanförnum árum hefur að jafnaði verið sótt um rúmlega helmingi meira en sjóðurinn hefur til ráðstöfunar, en í ár er hlutfallið nokkuð óhagstæðara þar sem ráðstöfunarfé sjóðsins er tæplega 10% minna en síðastliðið ár. Það verður því ennþá vandasamara verk að velja og hafna umsóknum að þess sinni.
Í ár og í fyrra var lögð áhersla á að umsækjendur kæmu með hnitmiðaðar umsóknir sem gætu skilað störfum og verðmætum á sem skemmstum tíma, og það er greinilegt að umsækjendur hafa orðið við því, þar sem aldrei hafa borist fleiri umsóknir sem taka á markaðssetningu og vöruþróun. Margar hugmyndir sem liggja fyrir geta skapað spennandi tækifæri ef væntingar umsækjenda ganga eftir.
Hafin er vinna við að meta umsóknirnar og er vonast til að það liggi fyrir í lok apríl hvaða verkefni fá styrk að þessu sinni. AVS sjóðurinn hefur 305,8 m.kr. í ár en hafði 335 m.kr. 2009. Frá því sjóðurinn tók til starfa árið 2003 hefur hann styrkt hundruð verkefna með um 1,5 milljarði króna, sem þýðir í raun að unnin hafa verið rannsókna- og þróunarverkefni fyrir a.m.k. 3 milljarða króna, þar sem styrkir eru aldrei hærri en sem nemur um 50% af kostnaði verkefnanna. Hægt er að lesa sig til um afrakstur verkefnanna á heimasíðu sjóðsins.

