Fréttir
Solvaafurdir
Sölvaafurðir

Söl í matinn

27.1.2010

Söl hafa verið nýtt á Íslandi frá landnámi. Neysla á sölvum hefur haldist fram á daginn í dag, en er aðeins brot af því sem áður var. Íslensk hollusta ehf. hefur í samstarfi við Matís ohf. þróað kryddlegin söl.

Söl eru tínd, verkuð og seld á hefðbundin hátt á nokkrum stöðum á landinu og margir tína söl til einkaneyslu. Markaðurinn fyrir söl er lítill hérlendis en hefur verið að vaxa ár frá ári, magnið er aðeins örfá tonn af þurrkuðum sölvum ár hvert. Bæði íslenskir en ekki síður erlendir neytendur (ferðamenn) hafa sýnt sölvum aukinn áhuga.

Söl eru nær eingöngu seld þurrkuð í dag og þá einkum heil og markaðssett sem hollustusnakk. Nýjar vörur hafa þó litið dagsins ljós á undanförnum árum s.s. sölvakrydd (þurrkuð og möluð söl), sölvasósa (nokkurs konar sojasósa með sölvabragði) og kryddlegin söl.

Í þessu AVS verkefni voru gerðar nokkrar tilraunir með marineringu á sölvum og tókst að lokum að þróa spennandi vöru með fallegt útlit og gómsætt bragð og verður áhugavert að fylgjast með hvernig markaðurinn tekur við þessari nýjung.

Tilvísunarmúmer AVS: S 017-08



Senda grein

header8


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica