Hitastýring frystra sjávarafurða skiptir miklu máli
Það skiptir verulegu máli að hafa fulla stjórn á aðstæðum við framleiðslu og flutning á frystum afurðum. Það þykir ekki gott að hægfrysta fisk eða láta hann þiðna upp í flutningi, slíkt rýrir óhjákvæmilega gæði afurða.
Hjá Matís er komin út skýrsla sem sýnir svart á hvítu hve tími og hitastig skipta miklu máli. Frysting og þíðing grálúðu var rannsökuð með tilraunum og tölvuvæddum varma- og straumfræðilíkönum (CFD) smíðuðum með varma- og straumfræðihugbúnaðinum FLUENT. Í verkefninu hefur verið sýnt fram á ótvírætt notagildi slíkra líkana fyrir flutningsferla ferskra afurða en niðurstöður þessarar skýrslu sýna að það sama gildir um frosnar afurðir.
Í frystitilrauninni var heilu bretti af hálffrosinni grálúðu komið fyrir í frostgeymslu og lofthiti og hiti grálúðu á mismunandi stöðum á brettinu mældur með hitasíritum. Það tók einn til fjóra daga, háð staðsetningu á bretti, að frysta grálúðu undir -15°C sem var -10°C til -5°C þegar hún fór inn í klefa, svo það skiptir miklu máli að klára frystinguna í frystitækjunum áður en afurðin er sett inn í fystiklefa.
Í þíðingartilraunum voru bæði stakir pokar og tuttugu pokar, sem staflað var á bretti, rannsakaðir í hitastýrðum kæliklefum Matís. Upphitun fullfrosinnar vöru var kortlögð við aðstæður, sem komið geta upp við uppskipun úr frystitogurum eða 10 – 20 °C lofthita. Við niðurstöður tilraunanna voru bornar saman niðurstöður þrívíðra varmaflutningslíkana og fékkst almennt gott samræmi þar í milli. Við 10 klst. geymslu í 12,6 °C lofthita hækkaði hiti í stökum pokum úr um -26 °C í u.þ.b. -5 °C. Við jafn langt hitaálag hækkaði hiti í pokum á bretti úr -22,5 °C í -17°C til -3 °C, sem sýnir hversu óeinsleit hitadreifingin getur verið við langvarandi hitaálag. Niðurstöður CFD líkansins sýndu að 10 m/s vindur við uppskipun flýtir þiðnun frosins fisks á bretti verulega.
Nánar upplýsingar veitir Björn Margeirsson doktorsnemi Matís og HÍ (bjornm@matis.is).
Skýrsla: Frysting og þíðing grálúðu - tilraunir í CFD hermun
Tilvísunarnúmer AVS: R 037-08

