Fréttir
Tharakaviar
Þarakavíar

Kavíar úr þara

20.10.2009

Hægt er að búa til kavíar úr þaraafurðum, og er hægt að finna slíkar afurðir víða á mörkuðum í Evrópu, en heildarmarkaðurinn er frekar smár og verðið lágt.

Lokið er AVS verkefninu “Þara kavíar”, en verkefnið var unnið af Fram Foods. Markmið verkefnisins var að leggja mat á hagkvæmni þess að framleiða kavíarlíki úr þörungum. Þetta átti að gera með því að afla upplýsinga um núverandi markaði fyrir þarakavíar í Evrópu og leggja mat á framtíðarhorfur. Ennig að afla upplýsinga um framleiðslu þarakavíars og að leggja mat á hvort tæknilega er hagkvæmt að nota íslenska þörunga til framleiðslunnar.

Þarakavíar er þegar þekktur á markaði í Evrópu (oft undir merkjum Cavi-art) en enn sem komið er er markaðurinn litill; heimsmarkaður er áætlaður um 300 tonn. Kavíarinn er seldur sem eftirlíking af fiskhrognakavíar (grásleppukavíar, silungahrognakavíar og laxakavíar) og gjarnan auglýstur sem grænmetis kavíar.

Þarakavíarinn er í raun kúlulaga algín skel með vatnskenndum vökva. Stærð “hrognana” getur verið mismunandi eftir hvaða fiskhrognum líkja á eftir. Vatnskenndi vökvinn er misþykkur eftir því hvaða “hrogn” eiga í hlut og bragð og litur einnig.

Þótt söluverð afurða sé lágt þá virðist framleiðslukostnaður vera lágur og því má gera ráð fyrir þokkalegri framlegð ef hafin væri framleiðslu hér á landi. Smæð markaðarins er þó áhyggjuefni og erfitt gæti reynst að komast inn á hann. Hægt er að nota algín úr íslenskum þörungum, en þar sem ekki er til staðar innlendur framleiðandi á algíni þarf að kaupa hráefni erlendis frá.

Tilvísunarnúmer AVS: S 017-07

Fram Foods (www.framfoods.com) er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu kældra sjávarafurða og skyldra matvara með verksmiðjur á Íslandi, í Svíþjóð, í Finnlandi og í Frakklandi og með söluskrifstofu í Þýskalandi. Einnig á Fram Foods hlut í verksmiðju í Chile. Starfsmannafjöldi er um 240. Helstu framleiðsluvörur Fram Foods er niðurlögð síld, niðurlögð hrogn (grásleppuhrognakavíar, loðnuhrognakavíar, laxahrognakavíar, silungahrognakavíar og ígulkerahrogn) smyrjur ýmis konar (þorskhrognatúpukavíar, tarama og guacomole) reyktur lax og lútfiskur. Fram Foods er í dag að selja til 10 af 15 stærstu stórmörkuðum í Evrópu.



Senda grein

header4


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica