Ensím eykur nýtingu og afköst
Hægt er að auka nýtingu í lifrarniðursuðu um 20-25% með því að nota ensím til að fjarlægja himnuna, sem er utan á lifrinni, afköstin aukast einnig umtalsvert og gæði afurðarinnar eru mun meiri og jafnari en áður.
AVS verkefninu varðandi þróun á búnað og ferli fyrir ensímmeðhöndlun á lifur fyrir niðursuðu er lokið en markmið verkefnisins var að auka verðmæti og nýtingu lifrar til niðursuðu, með því að þróa leið og vinnsluferil fyrir hreinsun á lifrarhimnu og losum hringorma með ensímum. Ennfremur var þróuð aðferð og sjálfvirkur búnaður til pækilsöltunar á lifur fyrir niðursuðu. Verkefnið var unnið í samstarfi við niðursuðuverksmiðjuna Ice-W ehf. og Martak ehf. í Grindavík ásamt Matís ohf. og styrkt af AVS.
Ice-W er ungt fyrirtæki sem sérhæfir sig í niðursuðu á lifur. Með þessu nýja vinnsluferli hefur fyrirtækið aukið samkeppnisstöðu sína í niðursuðuiðnaði á Íslandi og lagt grunninn að vænlegum framtíðarrekstri, ásamt því að auka virðisauka iðnaðarins. Markmið Ice-W er að auka starfsemi sína og framleiða 40 þúsund dósir á dag skapa þannig fleiri störf í náinni framtíð.
Nánar upplýsingar er að fá hjá Ásbirni Jónssyni hjá Matís ohf
Tilvísunarnúmer AVS: R 034-08

