Fréttir
Makríll
Makrill

Spá fyrir um gæði uppsjávarafla

15.9.2009

Í AVS verkefninu "Aukið verðmæti uppsjávarfisks" hefur verið þróuð ný aðferð til að spá fyrir um skemmdarferla uppsjávarafla. Sú aðferðafræði sem þróuð er í verkefninu gæti reynst notadrjúg til að skipuleggja meðhöndlun og vinnslu uppsjávarafla, þannig að stærri hluti hans skilaði sér til manneldis eða til framleiðslu á hágæðamjöli.

Á síðustu árum hefur átt sér stað ör framþróun á sviði tölvuvæddar varma- og straumfræði (CFD) . Í verkefninu er þessum nýju tækjum til líkanagerðar beitt með því að smíða tölvuvætt varma- og straumfræðilíkan af geymslutönkum uppsjávarafla. Inntak líkansins er tímaháður umhverfishiti sem aftur skilar hitastigsdreifingu og hreyfingu þeirrar blöndu uppsjávarafla og sjós sem geymd er í tönkunum.

     

Spa-linurit
Myndun skemmdaeinkennandi efnanna TMA, NH3 og TVN út frá gefinni hitastigssögu.

Önnur nýjung í verkefninu er sú að koma á tengingu milli varma- og straumfræði líkansins annars vegar og svonefnds gæðaspálíkans hins vegar, en það er stærðfræðilegt líkan þar sem lagður er mælikvarði á skemmdareinkenni hráefnis út frá hitastigssögu þess. Þannig eru líkönin tvö tvinnuð saman og nákvæm mynd af gæðum hráefnisins fæst út frá því hitaálagi sem hún verður fyrir á leið sinni til vinnslu.

Meginafrakstur verkefnisins er því þróun og beiting tækni sem gerir mögulegt að spá fyrir um skemmdarferla uppsjávarafla við gefið umhverfishitastig. Sú tækni gæti reynst gríðarlega notadrjúg í meðhöndlun og vinnslu uppsjávarafla, meðal annars á þann hátt að unnt verður að skipuleggja framhaldsvinnslu fyrr en áður hefur þekkst.

Tilvísunarnúmer AVS: R 051-08

Senda grein

header12


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica