Afli sem skiptir máli
Gögn sýna að í allt of mörgum tilvikum er fiskur af smábátum ekki nægilega vel kældur áður en hann kemur í land, auk þess sem blóðgun og þvottur er ekki í samræmi við ströngustu kröfur. Matís ohf, Landsamband Smábátaeigenda, Reiknistofa Fiskmarkaðanna, Ný-fiskur, Sjávariðjan Rifi og nokkrar smábátaútgerðir vinna nú að verkefni á vegum AVS sjóðsins þar sem markmiðið er bæta hráefnismeðferð um borð í smábátum.
Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að hráefnismeðferð er ekki sem skyldi um borð þessum útgerðarflokki, en það eru hins vegar einnig fjöldamörg dæmi um það að smábátasjómenn séu að standa sig mjög vel á þessu sviði. Það er því ljóst að umtalsverðir möguleikar eru á umbótum í greininni.
Ekki verður annað séð enn að smábátasjómenn séu almennt áhugasamir um að koma með sem best hráefni að landi, en oft á tíðum vantar hins vegar þekkingu á því hvað þurfi að gera til að hámarka gæði þess hráefnis sem menn eru með í höndunum.
![]() |
![]() |
| Svona skal þetta gert.... | en ekki svona! |
Verkefnið gengur því út á að auka meðvitund fyrir gæðum í allri virðiskeðjunni og fræða smábátasjómenn um hvernig þeir geti komið með sem best hráefni að landi. Haldin verða námskeið og gefnar út leiðbeiningar sem eru sérstaklega hannaðar að þörfum smábátasjómanna. Ástæða þykir til að benda sjómönnum í strandveiðikerfinu á að fylgjast vel með þessu verkefni, þar sem vitað er að hluti þeirra sjómanna sem undir því kerfi starfa skortir þekkingu og reynslu í meðferð afla, enda í sumum tilvikum þar um að ræða sjómenn sem ekki hafa starfað við útgerð smábáta áður.
Tilvísunarnúmer AVS: R 011-09



