Þorskkvóti til áframeldis
Ákveðið hefur verið að frestur til að sækja um þorskkvóta til áframeldis fyrir fiskveiðiárið 2009/2010 verði 15. september n.k.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út nýja reglugerð nr 736/2009 um úthlutun aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframelsis og framkvæmd þess.
Auglýsing ráðuneytisins:
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra auglýsir eftir umsóknum um úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski, sbr. reglugerð 736/2009, um úthlutun aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og framkvæmd þess.
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 15. september 2009.
Umsóknum skal skila til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík og einnig skal senda umsóknir með rafrænum hætti á netfangið postur@slr.stjr.is
Umsóknir skulu merktar sem ,,Þorskeldiskvóti“.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. september 2009.

