Fréttir

Lifrardós

Ensím eykur nýtingu og afköst - 21.9.2009

Hægt er að auka nýtingu í lifrarniðursuðu um 20-25% með því að nota ensím til að fjarlægja himnuna, sem er utan á lifrinni, afköstin aukast einnig umtalsvert og gæði afurðarinnar eru mun meiri og jafnari en áður.

Lesa nánar

 
Bleikjuflok

Hollusta sjávarfangs - 17.9.2009

Það fer ekkert á milli mála í huga okkar Íslendinga að fiskur og fiskafurðir er bráðholl næring, en það er samt mikilvægt að hafa mælingar og gögn sem sýna að svo sé. AVS sjóðurinn hefur styrkt mælingar á næringarefnum enda nauðsynlegt fyrir útflytjendur að hafa nýjar og áreiðanlegar upplýsingar við hendina.

Lesa nánar

 
Makríll

Spá fyrir um gæði uppsjávarafla - 15.9.2009

Í AVS verkefninu "Aukið verðmæti uppsjávarfisks" hefur verið þróuð ný aðferð til að spá fyrir um skemmdarferla uppsjávarafla. Sú aðferðafræði sem þróuð er í verkefninu gæti reynst notadrjúg til að skipuleggja meðhöndlun og vinnslu uppsjávarafla, þannig að stærri hluti hans skilaði sér til manneldis eða til framleiðslu á hágæðamjöli.

Lesa nánar

 
Fiskimjol

Arsen er ekki alltaf hættulegt - 11.9.2009

Arsen í matvælum og fóðri getur verið hættulegt. Nýleg rannsókn unnin af Matís sýnir að 50-90% af arseni í fiskimjöli er hættulaust. Hjá Matís hefur undanfarið verið unnið að rannsóknarverkefni sem er styrkt af AVS og miðar að því að þróa efnagreiningaraðferðir sem geta greint á milli eitraðra og hættulausra efnaforma arsens í fiskimjöli Lesa nánar
 
Stoltir_sjomenn

Afli sem skiptir máli - 7.9.2009

Gögn sýna að í allt of mörgum tilvikum er fiskur af smábátum ekki nægilega vel kældur áður en hann kemur í land, auk þess sem blóðgun og þvottur er ekki í samræmi við ströngustu kröfur. Matís ohf, Landsamband Smábátaeigenda, Reiknistofa Fiskmarkaðanna, Ný-fiskur, Sjávariðjan Rifi og nokkrar smábátaútgerðir vinna nú að verkefni á vegum AVS sjóðsins þar sem markmiðið er bæta hráefnismeðferð um borð í smábátum.

Lesa nánar

 
Ferskur fiskur

Forkæling skiptir sköpum - 4.9.2009

Reynslan hefur kennt útflytjendum ferskra fiskafurða að full ástæða er til að leita allra leiða til að verja vöruna fyrir því hitaálagi, sem hún verður fyrir í flugflutningi á leið til markaðar. Rannsóknir hafa sýnt að góð forkæling fyrir pökkun og vel einangraðar pakkningar geta skipt sköpum fyrir hitastýringu og þar með hámörkun afurðagæða. Matís, Háskóli Íslands og Promens Tempra, hafa tekið höndum saman um rannsóknir á þessu sviði innan AVS verkefnisins Hermun kæliferla.

Lesa nánar

 
Þorskur í eldiskví

Þorskkvóti til áframeldis - 2.9.2009

Ákveðið hefur verið að frestur til að sækja um þorskkvóta til áframeldis fyrir fiskveiðiárið 2009/2010 verði 15. september n.k.

Lesa nánar

 

header20


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica