Meira af grásleppu
Nú er hafinn útflutningur á frystri grásleppu til Kína, og hafa nokkrir gámar verið seldir. Triton ehf hefur í samstarfi við Landssamband smábáteigenda staðið að þessum útflutningi.
Í áratugi hefur grásleppan nánast eingöngu verið veidd til þess að hirða hrognin en erfitt hefur verið að finna farveg fyrir grásleppuna sjálfa, sem hefur verið hent í stórum stíl fram að þessu. Miðað við veiðar síðustu árin þá falla til um 2.800 tn af grásleppu eftir að hrognin haf verið nýtt. En nú hillir undir breytingar og hefur Triton ehf unnið markvisst að því á undanförnum árum að koma frystri grásleppu á markað.
Eftir þátttöku í sýningum í Kína kom loks alvöru pöntun og hafa verið seldir nokkrir gámar. Nokkuð erfitt var í fyrstu að fá sjómenn til að breyta kviðskurðinum á grálseppunni til að ná hrognunum, en það var ein af forsendum þess að kaupandinn í Kína tæki við vörunni. Menn eru bjartsýnir á að meira magn komist á markað á næstu vertíð og verður spennandi að fylgjast með framvindu þessa AVS verkefnis. Þessi árangur Triton ehf sýnir að finna má markað fyrir svo til allt sjávarfang og ætti að skerpa á þeirri kröfu að komið sé með allan afla á land.
Tilvísunarnúmer AVS: R 076-09

