Fréttir
Grasleppa
Grásleppa

Fullnýting hrognkelsa

14.8.2009

Hrognkelsi (Cyclopetrus lumpus) eru nær eingöngu veidd til þess að hirða hrogn grásleppunnar. Restinni þ.e. hausum, hveljum, innyflum og vöðvum er hent aftur í sjóinn. Að þessu leyti er tegundin vannýtt og talsverðir möguleikar á að auka verðmæti aflans með bættri nýtingu.

BioPol sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd, Háskólinn á Akureyri, Sero ehf og Landsamband smábátaeigenda hafa um nokkur misseri unnið að verkefni er miðar að fullnýtingu hrognkelsa. Rannsakaðir hafa verið eiginleikar grásleppukvelju m.t.t. framleiðslu á kollageni og úr grásleppuholdi hafa verið framleiddir bragðkjarnar. Vonir eru bundnar við að í kjölfar verkefnisins muni finnast leiðir til nýrra nýtingarmöguleika á afurðum hrognkelsa.

Markmið verkefnisins var að finna leiðir til að auka verðmæti grásleppuafurða með því að horfa bæði til nýtingar á hvelju og holdi m.t.t. framleiðslu á gelatíni og sérhæfðra bragðefna úr holdi. Hrognkelsi voru veidd vorið 2008 og 2009 og holdstuðlar mældir. Þá var efnainnihald grásleppu hvelju og holds mælt. Tilraunir voru gerðar til að draga kollagen úr hvelju og holdi hennar og einnig voru framleiddir bragðkjarnar úr holdi grásleppunnar. Helstu niðurstöður sýna að meðal hrognafylling var 28,8%, haus og hvelja um 37% og hold um 23%. Prótein í hvelju var um 7,6% og í holdi um 6,5%. Lítil fita var í hveljunni (2,0%) en mun meiri í holdi (9,4%). Vel gekk að vinna gelatín úr hveljunni þó voru niðurstöður mismunandi eftir aðferðum allt frá 1% til tæplega 10%. Gelatínið hefur lágt bræðslumark er fljótandi við herbergishita.

Miðað við heildar afla á grásleppu er umtalsverðu magni hent í sjóinn aftur eða um 2.800 tonnum að meðaltali. Vinna má umtalsvert magn af gelatíni úr þessum afla og einnig annað prótein. Þannig er ljóst að auka má verðmæti aflans með því að hirða hann og vinna frekar. Verkefnið skilaði samböndum erlendis sem auka líkurnar á að þetta takist.

Tvö ný AVS verkefni fengu styrk 2009 til að halda áfram að leita leiða til að auka verðmæti grásleppunnar, R 093-09 og R 076-09.

Tilvísunarnúmer AVS: R 044-08



Senda grein

header1


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica