Nýjar vísindagreinar um vetrarsárabakteríuna
AVS hefur styrkt rannsóknir á vetrarsárabakteríunni M. viscosa þar sem nýr sýkiþáttur bakteríunnar hefur verið einangraður og virkni hans skoðuð. Einnig hafa áhrif afurða bakteríunnar á tjáningu ónæmistengdra gena verið skoðuð í laxamódeli. Nýlega hafa verið birtar tvær greinar sem lýsa niðurstöðum þessara rannsókna.
Fyrri greinin lýsir einangrun og skilgreiningu á virkni utanfrumu peptíðasa bakteríunnar M. viscosa. Einangraði peptíðasinn, nefndur MvP1, reyndist vera 38 kDa vibriolysin sem var ekki banvænt laxi, en olli umtalsverðum blæðingum og vefjadrepi umhverfis stungustað. MvP1 braut einnig niður prótín sem finnast í hýsilvef og fiska IgM. Mögulegt er að MvP1 hafi áhrif á sýkingarmátt bakteríunnar með því að eiga þátt í bólfestu og útbreiðslu sýkingarinnar með vefjaskemmdum.
Seinni greinin lýsir því hvaða áhrif M. viscosa frumur, seyti bakteríunnar og einangraður MvP1 peptíðasi höfðu á tjáningu bólgumiðlandi genanna IL-1β og IL-8 í laxafrumulínu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á mun á hæfni lifandi og dauðra bakteríufrumna til að örva tjáningu þessara gena og einnig að óþekktur þáttur í seyti bakteríunnar, annar er MvP1, veldur mestri örvun á tjáningu þeirra. Niðurstöðurmar geta gefið upplýsingar um viðbrögð ónæmiskerfis laxs við upphaf vetrarsárasýkingar.
Greinarnar:
Bjornsdottir B, Fridjonsson OH, Magnusdottir S, Andresdottir V, Hreggvidsson GO and Gudmundsdottir BK. 2009. Characterisation of an extracellular vibriolysin of the fish pathogen Moritella viscosa. Veterinary Microbiology 136, 326-334
Bjornsdottir B, Fast MD, Sperker SA, Brown LL and Gudmundsdottir BK. 2009. Effects of Moritella viscosa antigens on pro-inflammatory gene expression in an Atlantic salmon (Salmo salar Linnaeus) cell line (SHK-1). Fish & Shellfish Immunology 26, 858-863
Tilvísunarnúmer AVS: R 006-04

