Fréttir
Lodnuhrogn a thurrkbandi
Loðnuhrogn á þurrkbandi

Bættur vinnsluferill loðnuhrogna

1.7.2009

Allt bendir til þess að hægt sé að stytta þurrkferil loðnuhrogna með því að nota þurrk-færiband í stað þess að láta hrognin standa í kerum í allt að 20 klukkustundir.

Vinnsluferli loðnuhrogna hefur lítið breyst frá upphafi þeirra vinnslu sem var þróuð um miðjan sjöunda áratuginn. Veikasti hlekkur vinnslunnar hefur án efa verið þurrkun hrogna fyrir pökkun þar sem mikill kostnaður liggur í fjárfestingu á kerum og húsrými og ekki síst vegna langs þurrktíma, eða allt að 20 klukkustundum sem getur leitt til örveruvaxtar ef hitastigsstjórnun bregst.

Loðnuhrogn flokkast undir tilbúin matvæli þar sem hitameðhöndlun fyrir neyslu er yfirleitt ekki viðhöfð og því mikilvægt að viðhafa ítrasta hreinlæti við vinnsluna og að vinnslan gangi sem hraðast fyrir sig.

Megin tilgangur verkefnisins, sem AVS sjóðurinn styrkti, var að stytta þurrktíma hrognanna og gera vinnslu þeirra samfelda. Forprófanir með þurrkbandi í stað kera voru framkvæmd á Vopnafirði og í Neskaupstað á loðnuvertíð 2008. Í verkefninu voru settir upp og prófaðir mismunandi þurrkferlar fyrir loðnuhrogn og sett fram reiknilíkan fyrir þurrkunina auk þess sem könnuð voru áhrif vinnsluþátta á hrognin á mismunandi þroskastigi.  Með nýjum þurrkferli er unnt að gera vinnsluna samfellda auk þess sem stýring þurrkunar verður mun markvissari. 

Verkefnið er samvinnuverkefni Matís ohf, Síldarvinnslunnar hf, HB Granda hf og Ísfélag Vestmannaeyja hf.

Verkefnisstjóri hefur tekið saman skýrslu um fyrri rannsóknir á loðnuhrognum sem nálgast má hér

Tilvísunarnúmer AVS:  R 055-08



Senda grein

header6


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica