Þorskur leiddur í gildru
Reynt er að laða villtan þorsk í gildrur með lyktarefni í stað þess að elta hann um allan sjó. Útibú Hafrannsóknastofnunarinnar á Ísafirði vinnur nú að verkefni sem nefnist „aðlöðun og gildrun þorsks“. Markmið verkefnisins er að finna hagkvæma leið til að fanga þorsk í gildrur.
Í megindráttum eru notaðar tvær aðferðir við gildruveiðar. Annarsvegar eru notaðar s.k. leiðigildrur og hinsvegar beittar gildrur. Í eðli sínu eru aðferðirnar áþekkar, munurinn felst í því hvernig fiskurinn er lokkaður að gildrunni.
Frá inngangi leiðigildra liggur langur leiðari sem er lóðrétt netgirðing sem stöðvar göngu fisks leið á um svæðið og leiðir hann að opi gildrunar. Þessi aðferð getur verið árangursrík ef gönguleiðir fisks eru þekktar.
Beittu gildrurnar byggja á aðlöðun fisks með lykt frá beitu, í flestum tilfellum fiskmeti. Rannsóknir hafa sýnt að líftími beitu í sjó er afar stuttur og þarf því stöðugt að endurnýja beituna sem rýrir mjög hagkvæmni og veiðni aðferðarinnar. Því er ljóst að með því að tryggja langvarandi útstreymi lyktarefna með sjálfvirkum hætti má bæta veiðni og hagkvæmni aðferðarinnar verulega.
Fyrstu skref verkefnisins, sem styrkt er af AVS sjóðnum, voru stigin sumarið og haustið 2008 þegar teknar voru myndir neðansjávar af s.k. leiðigildrum sem prófaðar hafa verið hérlendis með misgóðum árangri. Einnig fóru fram prófanir á áhrifum nokkurra gerða lyktarefna á þorsk í tilraunakví í Álftafirði við Ísafjarðadjúp.
Tilraunaaðstaða og uppsetning búnaðar var samnýtt með öðru verkefni stofnunarinnar, „Atferlisstjórnun á þorski með hljóðduflum“. Skemmst er fá því að segja að niðurstöður þeirra prófana lofuða góðu og er nú verið að stíga næstu skref í verkefninu. Þau felast í hönnun, smíði og prófunum á búnaði sem gerir mönnum kleyft að stýra skömmtun á lyktarefnum við botn og jafnframt að fylgjast með í myndavélum hvort og hvernig fiskur bregst við.
Skömmtunar- og myndavélabúnaður við botn er tengdur við bauju á yfirborði sem hýsir tölvubúnað til stýringar á skömmtun, upptöku og stjórnun myndavéla ásamt þráðlausum samskiptum í land. Einnig er í baujunni búnaður til framleiðslu á rafmagni, bæði sólarsellur og efnarafall. Smíði og samsetning þessa búnaðar er nú á lokastigi og verður prófaður nú á haustmánuðum í Ísafjarðardjúpi. Verði niðurstöður prófana jákvæðar mun verða smíðuð gildra utan um búnaðinn og reynt að fanga þann fisk sem rennur á lyktina.
Verkefnið hlaut styrk af AVS rannsóknasjóði og er samvinnuverkefni útibús Hafrannsóknastofnunar á Ísafirði, Hraðfrystihússins Gunnvarar hf., LÍÚ og Háskólans á Akureyri.
Tilvísunarnúmer AVS: R 052-08

