Fréttir
Vottad_lifraent
Vottunarmerki fyrir íslenska lífræna framleiðslu

Nýjar vottunarreglur fyrir lífrænt fiskeldi og fiskirækt

24.6.2009

Birtar hafa verið nýjar reglur um lífrænar aðferðir við eldi og ræktun lagardýra og vottun slíkrar framleiðslu. Reglur þessar taka til eldis á laxi, regnbogasilungi, bleikju, þorski, lúðu og sandhverfu og til kræklingaræktar. Reglurnar eru mótaðar innan ramma alþjóðlegra reglna um lífræna framleiðslu og tekið var mið af reynslu annarra þjóða af vottun á þessu sviði, einkum í grannlöndum okkar í Noregi og á Bretlandseyjum.

Tilkoma þeirra mun skapa íslenskum fiskeldis- og fiskiræktarfyrirtækjum bætt skilyrði til að taka upp vottaða framleiðslu og vöruþróun fyrir þá markaði sem gera mestar kröfur í umhverfislegu tilliti og bjóða jafnframt hæstu verðin.

Fyrirtæki sem sækja um vottun þurfa að ljúka lífrænni aðlögun og að uppfylltum settum reglum geta þau markaðssett vörur sínar með vottunarmerki lífrænnar framleiðslu.

Reglurnar fjalla um hina ýmsu þætti eftirlits og stjórnunar framleiðslunnar: Gæðastjórnun og skráningar, lífræna aðlögun og aðlögunartíma, afmörkun frá annarri starfsemi, hvernig komið skuli upp lífrænum stofni, umhverfisaðstæður og vatnsgæði, þéttleikamörk í eldi, fóðrun og heilbrigði, flutning og uppskeru.

Verkið var unnið í samstarfi Hólaskóla – Háskólans á Hólum og Vottunarstofunnar Túns, með fjárhagslegum stuðningi frá AVS-sjóðnum, og grundvelli samráðs við innlenda hagsmunaaðila og sérfræðinga innan og utan lands. Reglurnar má nálgast hjá Vottunarstofunni Túni.

Nánari upplýsingar um vottunarreglur fyrir lífrænt lagareldi og lagarrækt:

Hólaskóli – Háskólinn á Hólum

Dr. Helgi Thorarensen (helgi()holar.is)

Háeyri 1

550 Sauðárkrókur 455 6300 og 868 2053 ; www.holar.is

Vottunarstofan Tún ehf.

Gunnar Á. Gunnarsson (tun()tun.is)

Laugavegi 7

101 Reykjavík

511 1330 og 820 4130 ; www.tun.is

Tilvísunarnúmer AVS: S 016-07



Senda grein

header13


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica